Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Page 57

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Page 57
túlkun 1. tölul. 5. gr. yrði í samræmi við dóma Evrópudómstólsins í Ivenel og Schenavai málunum.70 Að baki reglunni búa aðallega tvenns konar rök. I fyrsta lagi er vamarþing þar í ríki sem líklegt er að landsréttur taki til samningsins. Af þessu leiðir að hafi aðilar ekki samið um hvers lands lög gildi um samninginn, verður lögum þess lands þar sem launþeginn starfaði að jafnaði beitt um samninginn. í öðru lagi miðar reglan að því að vemda veikari aðilann í samningssambandi.71 Orðum sínum samkvæmt er ákvæðið takmarkað við vinnusamninga ein- stakra manna. Vandasamt getur verið að ákvarða nákvæmlega hvað felst í þessu. Þó er ljóst að ákvæðið tekur ekki til heildarkjarasamninga milli aðila vinnumarkaðarins72 né heldur til starfa sjálfstætt starfandi sérfræðinga.73 Ekki skiptir máli samkvæmt reglunni hvemig aðild máls er háttað, þ.e. hún gildir án tillits til þess hvort mál er höfðað gegn vinnuveitanda eða launþega. Þannig er launþega skylt að sæta dómi á „vinnuveitandavamarþingi“. Að þessu leyti má segja að reglan komi tæplega heim og saman við þann tilgang að vemda launþegann sem líkur eru á að sé veikari aðili samningssambandsins.74 Af Lúganósamningnum leiðir að eftirfarandi dómstólar geta haft lögsögu í ágreiningi milli vinnuveitenda og launþega. I fyrsta lagi dómstóll þar sem vam- araðili á heimili, sbr. 2. gr. I annan stað þeir dómstólar sem nefndir eru í 1. tölul. 5. gr. I þriðja lagi dómstólar sem veitt hefur verið dómsvald með vamarþings- samningi sem gerður hefur verið eftir að ágreiningur er risinn, sbr. 5. tölul. 17. 70 Almeida Cruz, Desantes Real og P. Jenard: „Report by Mr de Almeida Cruz, Mr Desantes Real and Mr Jenard on the Convention on the accession of the Kingdom of Spain and the Portu- guese Republic to the accession of the Kingdom of Spain and the Portuguese Republic to the 1968 Brussels Convention on jurisdiction and the enforcement of judgements in civil and commercial matters". OJ 1990 C 189, bls. 44; P. Jenard og G. Möller: OJ 1990 C 189, bls. 72. 71 Chesire & North: Private Intemational Law, bls. 298. 72 Almeida Cruz, Desantes Real og P. Jenard: OJ 1990 C 189, bls. 44; P. Jenard og G. Möller: OJ 1990 C 189, bls. 73. í máli 133/81 Ivenel gegn Schwab [1982] ECR 1891 kom fram að í til- vikum, þar sem krafa er byggð á ýmsum skuldbindingum sem eiga rót sína í umboðssamningi milli launþega sem er ekki sjálfstæður og fyrirtækis, er það sú skuldbinding sem einkennir samninginn, þ.e. staðurinn þar sem framkvæma á vinnuna, sem hafa ber í huga við beitingu 1. tölul. 5. gr. samn- ingsins. Sjá einnig mál 266/85 Schenavai gegn Kreischer [1987] ECR 239; mál 32/1989 Six Con- structions gegn Humbert [1989] ECR 341. 73 Sjá mál 266/85 Schenavai gegn Kreischer [1987] ECR 239. Þar var deilt um þóknun arkitekts vegna vinnu við að teikna sumarbústaði. Dómstóllinn taldi að þetta væri ekki mál sem varðaði vinnusamninga einstakra manna í skilningi 1. tölul. 5. gr. I þessu máli kom þetta einnig fram að vinnusamningum megi lýsa þannig að „they create a lasting bond which brings the worker to some extent within the organizational framework of the business of the undertaking or employer, and they are linked to the place where the activities are pursued, which determines the application of mandatory rules and collective agreements". 74 A það skal bent að samhliða ákvæði í Brusselsamningnum veitir einungis heimild til að höfða mál á hendur vinnuveitandanum. Annar munur er á þessum samhliða ákvæðum samninganna. Hann er sá að samkvæmt Brusselsamningnum er heimilt að lögsækja vinnuveitandann, ef laun- þeginn starfar að jafnaði ekki í einu tilteknu landi, á þeim stað sem starfstöðin er eða var sem réð hann til starfa. Þetta hefur raunhæfa þýðingu ef starfstöðin er flutt eftir að launþeginn var ráðinn til starfa. 337
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.