Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2003, Page 57

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2003, Page 57
heimildir. í krafti 308. gr. (áður 235. gr.) Rómarsáttmálans, sem er eins konar almenn heimild til lagasetningar, opnuðu stofnanir Evrópusambandsins einnig víðtæk svið fyrir Evrópurétti, þ.e. ákvörðunarstofnanir settu reglugerðir eða tilskipanir með almennri tilvísun í (þá) 235. gr. en ekki með eiginlegri efnislegri stoð (principle of implied powers).'"' Þá er spurningin hvort íslenska ríkið hafi sjálfdæmi til sjálfstæðrar stefnu- mótunar og lagasetningar á þeim tilteknu sviðum sem heyra undir EES-samn- inginn. Svarið við því er nei. Island hefur ekki sjálfdæmi en það hefur svigrúm innan þeirra marka sem EES-samningurinn setur. Ekki verður séð að Noregur, Island og Liechtenstein hafi látið mjög á það reyna. í skýrslu utanríkisráðherra segir um þetta: ... í þeim tilvikum þegar ríki notfæra sér svigrúm til þess að l'ramfylgja gerð eftir sínum skilningi, ætti svigrúm aðildarríkja ESB og EES væntanlega að vera nokkuð svipað. Framkvæmdin er að miklu leyti í höndum aðildarríkjanna og er ljóst t.d., þegar um tilskipanir er að ræða að aðildarríki hafa svigrúm til athafna þó að það sé ekki nákvæmlega skilgreint."u Eins og Guðmundur Alfreðsson benti á 1992 er sérstaða EES sú að vald er í raun framselt til yfirþjóðlegrar stofnunar sem ísland hefur ekki aðild að sjálft. Áhrifaleysi EFTA-ríkjanna innan EES er viðurkennt. Ennfremur er ljóst að aðildamkin nýta ekki og geta e.t.v. ekki nýtt þá möguleika sem þau þó hafa á því að hafa áhrif á mótunarstigum löggjafar." ' Af 360 nefndum sem ísland á aðgang að taka íslenskir fulltrúar þátt í 82 nefndum, einhvern þátt í 105 nefnd- um en engan þátt í 161 nefnd. Upplýsingar fengust ekki um 12 nefndir."6 Segir í greinargerð vinnuhóps utanríkisráðuneytisins að „dæmi séu um að takmörkuð þátttaka íslenskra stjómvalda í undirbúningi löggjafar hafi hugsanlega leitt til þess að íslendingar sitji uppi með strangari og kostnaðarsamari reglur en ella“.107 Þar sem EES-samningurinn tekur ekki til samræmdrar viðskiptastefnu eða tollabandalags er EES-ríkjunum frjálst að gera viðskiptasamninga við önnur rfki ólíkt aðildarríkjum ESB. í skýrslu utanríkisráðherra segir að reynslan hafi 103 Sjá t.d. T.C. Hartley: The Foundations of European Law. 4th ed. Oxford 1998, bls. 102-108. 104 Skýrsla utanríkisráðherra, bls. 80. 105 f október 2002 var lagt fram í ríkisstjóm íslands minnisblað þar sem vakin var athygli á ófullnægjandi þátttöku fslands í nefndum á vegum ESB. Til grundvallar minnisblaðinu lá greinargerð vinnuhóps EES-tengiliða um rétt Islands samkvæmt EES-samningnum til þátttöku í nefndum ESB. Árið 2001 hafði EFTA-skrifstofan látið gera viðamikla könnun á þátttöku EES/EFTA-ríkjanna í þessum nefndum og var það hvati að stofnun vinnuhópsins. 106 Sama heimild. 107 Dæmi sem nefnd eru: Urðunartilskipunin 1999/31/EB, Brennslutilskipunin 2000/76/EB, Neysluvatnstilskipunin 98/83/EB. I öllum þessum tilvikum taldi viðkomandi innlent stjómvald, Hollustuvemd, að komast hefði mátt hjá kostnaði og miklu óhagræði fyrir atvinnulíf á Islandi ef sérfræðingar hefðu komið að mótun löggjafarinnar. 51
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.