Tímarit lögfræðinga - 01.04.2003, Blaðsíða 105
Gústaf Þór Tryggvason hrl. og Othar Öm Petersen hrl. voru kjömir endur-
skoðendur og Þorbjörg I. Jónsdóttir hdl. til vara.
í laganefnd voru kjörin Jakob R. Möller hrl., Erlendur Gíslason hrl., Ólafur
Haraldsson hdl., Jóhannes Rúnar Jóhannsson hrl. og Sif Konráðsdóttir hrl.
í stjóm Námssjóðs, sem jafnframt gegnir störfum bókasafnsnefndar félagsins,
voru þau Erla S. Amadóttir hrl., Jóhann Níelsson hrl. og Eyvindur G. Gunnars-
son hdl. kosin til þriggja ára.
Vegna úrsagnar Jóhannesar Sigurðsson hrl. úr úrskurðamefnd lögmanna
varð að kjósa einn fulltrúa félagsins í nefndina til fimm ára frá og með síðustu
áramótum og annan til vara. Tillaga um kjör Kristins Bjamasonar hrl. sem aðal-
manns og Helga Birgissonar hrl. sem varamanns var samþykkt samhljóða.
3. Breytingar á samþykktum félagsins
Fráfarandi formaður félagsins, Ásgeir Thoroddsen hrl., kynnti fyrir fundinum
tillögu stjómar Lögmannafélags Islands um breytingar á ákvæðum 2. mgr. 4. gr., 2.
mgr. 7. gr. og 1. og 4. mgr. 17. gr. samþykkta félagsins. Nokkrar umræður áttu sér
stað um þessar tillögur og bar fundarstjóri þær því undir atkvæði fundarins. Niður-
staða atkvæðagreiðslu var sú að tillaga um breytingu á orðalagi 2. mgr. 4. gr. sam-
þykktanna var felld með minnsta mögulega mun en aðrar tilllögur vom samþykktar
af fundinum. Þau ákvæði sem breytingar vom samþykktar á hljóða svo:
2. mgr. 7. gr.
Aðalfund skal boða með auglýsingu í a.m.k. einum fjölmiðli og með tilkynningu til
hvers einstaks félagsmanns með minnst hálfs mánaðar fyrirvara, talið frá og með
útsendingardegi fundarboðs.
1. mgr. 17. gr.
Félagsmenn greiða árgjald sem rennur í félagssjóð og er ætlað að standa straum af
rekstri félagsins. Gjalddagi árgjalds er 1. júní ár hvert.
4. mgr. 17. gr.
Félagsmenn, 70 ára og eldri, greiða ekki árgjald. Ennfremur greiða nýir félagar ekki
árgjald á því almanaksári sem þeir verða félagsmenn.
Gildistökutíma samþykktanna samkvæmt 24. gr. er breytt í samræmi við gerðar
breytingar.
4. Önnur mál
Undir liðnum önnur mál voru líflegar umræður og kvöddu margir sér hljóðs.
Róbert Árni Hreiðarsson hdl. tók til máls um kjör félagsmanna. Kvaðst hann
hafa tekið þetta mál upp á síðasta aðalfundi, auk þess sem hann hafi skorað á
stjóm félagsins fyrir u.þ.b. þremur árum að skoða sérstaklega kjör lögmanna
hér á landi í samanburði við nágrannalöndin. Taldi hann víst að laun íslenskra
lögmanna væru almennt þrisvar sinnum lægri en tíðkaðist erlendis. Skoraði
99