Tímarit lögfræðinga - 01.04.2003, Blaðsíða 60
5.5 Niðurstaða um framsal fullveldis með EES-samningnum
Sú forsenda var lögð til grundvallar staðfestingu EES-samningsins að í
honum fælist ekki framsal fullveldis og ekki þyrfti að breyta stjómarskrá vegna
aðildar að honum. Meginástæða þess að menn töldu þá forsendu uppfyllta var
sú að tvíeðliskenningin, um tengsl landsréttar og þjóðaréttar, myndi tryggja að
löggjöf Evrópusambandsins tæki gildi á Islandi eftir hefðbundnum lögform-
legum leiðum en ekki á nokkurn annan hátt. Tvíeðliskenningin reyndist ekki
slík vörn gegn flóði EES-reglna enda höfðu aðrar aðferðir við inntöku EES-
réttar í raun verið innleiddar með samningnum. Tvíeðliskenningin vék fyrir þeim
þegar á reyndi.
Stjómarskráin, nr. 33/1944, gerir ekki ráð fyrir framsali fullveldis. EES-
samningurinn fól í sér að sjálfdæmi var skert á því sviði sem samningurinn nær
yfir, en alþjóðastofnun sem Island á ekki aðild að var falið löggjafarvald. Þetta
reynir mjög á þanþol stjórnarskrárinnar og veikir lögmætisregluna sem grund-
völl réttarríkis og lýðræðis á Islandi.
6. AÐ BEITA FULLVELDI SÍNU
Alvarlegasta veila fræðaiðkunar í lögfræði - og hún er velþekkt frá ýmsum
skeiðum réttarsögunnar - rís þegar hugtakakerfi eða skýringakerfi í lögfræði
missir tengsl við veruleikann sem það á að lýsa eða greina. Þá verða skil á milli
heilbrigðrar skynsemi og „stöðu fræðanna“."3 Eg hef haldið því fram í þessari
grein að aðild Islands að Evrópska efnahagssvæðinu hafi falið í sér framsal
fullveldis til stofnunar sem ber yfirþjóðleg einkenni. Raunar er það svo að í
íslenskri lögfræðingastétt, meðal fræðimanna hvort sem er í félagsvísindum eða
hugvísindum og meðal forystumanna í íslenskum stjómmálum, er þetta almanna-
rómur.
Hver ættu viðbrögðin að vera? Þar kemur tvennt til greina: I fyrsta lagi að
breyta stjórnarskránni. Slík stjórnarskrárbreyting yrði að mínu áliti að fela í sér
tvennt:
(a) að tekin verði upp í stjórnarskrá skilgreining á tengslum landsréttar og
þjóðaréttar sem tekur mið af rauntengslum við EES-rétt, MSE-rétt o.fl., styrkir
um leið hina almennu lögmætisreglu stjómskipunar og stjómsýslu og skýrir
rétthæð réttarheimilda á íslandi.
(b) að tekið verði upp í stjómarskrá opnunarákvæði að evrópskri fyrirmynd.
I öðru lagi að bregðast við orðnum hlut í íslenskri fræðaiðkun í lögfræði en
afneita honum ekki. Viðurkenning þess að framsal hafi þegar orðið á fullveldi
leiðir óhjákvæmilega til endurskoðunar á réttarheimildahugtakinu, á rétthæð
réttarheimilda, á stöðu æðstu stofnana rrkisvaldsins gagnvart hver annarri og
113 Staða fræðanna er þýðing á enska hugtakinu „State of the Art“. Það er notað í stjómkerfi
vísinda- og fræðastyrkja til að meta stöðu þekkingar, t.d. hvort nýtt framlag eigi erindi, í því felist
nýnæmi, það bæti við þekkingu á tilteknu sviði o.s.frv.
54