Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2003, Side 68

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2003, Side 68
losnaði um og að lokum slitnuðu að öllu hin beinu tengsl við gömlu nýlenduveldin tvö á Iberíuskaganum, Spán og Portúgal. Um skeið hefði með talsverðum rétti mátt tala um hina „blóðugu heimsálfu“ meðan frelsisstríð spænskumælandi manna var háð þar, alls staðar með ósigri hins gamla heimsveldis en jafnframt með miklum fómum. I sannleika sagt hafa hin spænskumælandi ríki Suður-Ameríku - í reynd flest ríki álfunnar önnur en Brasilía, þar sem þjóðtungan er portúgalska" - aldrei borið sitt barr eftir þessi miklu átök á fyrri hluta 19. aldar, og Brasilíumenn hafa heldur aldrei náð sér vel á strik, þótt stjómarfars- og sjálfstæðissaga þeirra sé ekki að öllu leyti sambærileg við hin löndin. Enn er stjómarfar fremur ótryggt og ókyrrð blundar í þessuni löndum öllum, lýðræði (sem alls staðar ríkir þar nú að nafni til) á sér sannarlega ekki djúpar eða sterkar rætur og vart er hægt að tala um lýðræðis- hefðir í sama skilningi og við getur átt í sumum Vestur-Evrópuríkjum a.m.k. og í ríkjum Norður-Ameríku. Uppreisnin gegn hinum spænsku nýlenduherrum var aðeins upphaf fjölmargra uppreisna og byltinga sem ekki sér fyrir endann á. I flestum ríkjanna hafa skipst á stjórnir íhaldssamra herforingja, sem tóku völdin í skjóli vopnavalds, og lýðræðislega kosinna forystumanna sem hafa iðulega ekki reynst starfi sínu vaxnir þegar til lengdar lét - spillingin hefur riðið húsum undir hvaða stjómarfari sem boðið var upp á. Allt er þetta reyndar alkunnugt en þó verður því vart neitað að fréttir þær, sem þjóðir heims - t.d. Norðurálfumenn - fá af gangi mála í Suður-Ameríku, eru oftar en ekki nokkuð „einlitar“. Hvað oft höfum við ekki fengið að fylgjast með því, í nærmynd á sjónvarpsskjánum, hvemig her eða lögregla reynir að bæla niður götuuppreisnir í Buenos Aires eða í öðrum stórborgum álfunnar, skyggnst inn í ömurleg fátækrahverfi í fegurstu borg heims, Rio de Janeiro, og orðið vitni að úrræðaleysi og eymd hinna örsnauðu manna þar og víða annars staðar, séð eða heyrt í fréttum um sívaxandi glæpastarfsemi víða í þessum löndum, fengið að sjá vegsummerki um hryðjuverkastarfsemi ýmissa minni- hlutahópa, háværar og stundum blóðugar kröfugöngur mannréttindahópa eða hlustað á fréttaskýringar um hyldýpi spillingar, kúgunar, ógnar og hörku, sem virðist alls staðar blunda meðal þessara þjóða og brýst síðan út öðru hverju með sprengiafli. Við fáum hins vegar mun sjaldnar fregnir af hinu sem jákvætt er um mannlíf þessara suðrænu þjóða, sem eru okkur svo fjarlægar öðrum þræði en geta þó jafnframt verið svo nálægar fyrir tilstilli tækninnar. Hinar neikvæðu fréttir hafa löngum mótað „ímynd“ Suður-Ameríku úti um heimsbyggðina og vissulega ekki orðið þjóðum hennar til framdráttar. Oft hefur verið sagt, og sjálfsagt með réttu, að flestir Bandaríkjamenn líti á Suður-Ameríkumenn sem „órólegu deild- 2 í þessari ritgerð verður ekki haft mið af rétti tveggja smáríkja í Suður-Ameríku, þ.e. ríkjanna Guyana, þar sem enska er töluð og enskar réttarhefðir ríkja í verulegum mæli, og Surinam, þar sem hollensk áhrif eru ríkjandi, og sama á við um Frönsku Guyana þar sem franskættuð menning og réttarhefðir eru við lýði, enda er þar um að ræða landsvæði sem telst vera hluti af Frakklandi stjómarfarslega. 62
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.