Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1918, Side 12

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1918, Side 12
n felmtinn og hræðsluna, eins og sjá má af aðförum bæði manna og dýra, er þau gerir bæði »sárt og að ldæja«. For- vitnin kvelur og hvetur til frekari viðkynningar, en hræðsl- an styggir og fær niann til að hörfa undan eða að hopa á hæli. Athugum t. d. kálfa og kýr, hesta og hunda, er gera ýmist að nálgast hitt og þetta og að nasa af því, eða hopa á hæli og forðast það. Þó er forvitnin hvergi eins mögnuð, að sögn, og hjá öpunum. Og þá eru börn ekki siður for- vitin. En það er furðan yfir nýjabruminu, sem venjulegast liggur til grundvallar fyrir forvitninni. En bæði óvænið og furðan eru frumlegustu vitkendir manna og dýra. II. Löngunin og liorfkendirnar. Lönguninni sleppir Mc. Dougall alveg úr flokki hinna frumlegu hvata, og er þó engin tilhneiging manna og d)rra tíðari nje víðtækari. Löng- unin í eitlhvað matarkyns er að minsta kosli öllum lífsver- um ásköpuð, svo sannarlega sem endurnæringarþörfln er ein af helstu frumþörfum allra lifsvera. Gefur hún, og þó einkum með mönnum, sem farnir eru að geta skapað sjer hugmyndir um það, sem framundan er og hið ókomna, til- efni til ýmissa tilfinninga, eftir því hvernig horfurnar eru í það og það skiftið, tilefni til eftirvæntingar, vonar og ótta og margra annara kenda, er síðar mun getið nánar (í II. kaíla). Mætti nefna allar þessar tilfinningar einu nafni horfkendir, af þvi að þær spretta af því, hvernig við horfir um þæging þarfarinnar i það og það sinnið. Er engin áslæða til að ætla annað en að minsta kosti sumar þeirra, eins og t. d. e f t i r v æ n t i n g i n, geri vart við sig hjá dýr- um, eins og þau geta mænt upp á mann og dinglað róf- unni, er þau vænta matar síns, og orðið sneypt og stungið rófunni milli fótanna af einskærum vonbrigðum. III. Óbeit og yiðbjóður — andstygð og hryllingur. Gagn- stæð lönguninni er óbeit og viðbjóður. Vont bragð og vond lykt vekja óbeit, en óbeitin vekur aflur viðbjóð. Viðbjóður- inn lýsir sjer venjulegast í því, að lífsveran hristir höfuð silt og skekur við því, sem -óbeitinni veldur, og snýr sjer að lokum alveg undan. Andslygðin vaknar aftur á móti við köld, þvöl, slepjukend eða önnur ógeðsleg áhrif á líkamann, eða ef einhver óværð skríður á mann. Fer þá oft hrollur um mann eða hryllingur og maður reynir að hrista það af sjer, sem ógeðinu veldur, eins og t. d. er hross hrylla sig og slá við taglinu til þess að fæla burt ílugu eða önnur óþæg- indi. Margt er það, sem vekur mönnum ýmist viðbjóð eða
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.