Hugur - 01.01.1996, Qupperneq 87
Hversvegna?
85
Öll orka sem til er og sérhver hlutur sem til er á tilvist sína að þakka
hreinni sköpunarathöfn. Til þess að vera hið endanlega svar við
öllum tilvistarráðgátum hlýtur þessi æðsta orsök að vera hrein/
algjör tilvist. Þar sem slík orsök er algjör er hún sjálfri sér nóg. Ef
hún skapar hlýtur sköpunarathöfn hennar að vera fijáls. Þar sein hún
skapar ekki aðeins tilveru heldur og skipulag hlýtur hún að vera
eitthvað sem inniheldur í einhverri æðri mynd eina skipulags-
lögmálið sem við þekkjum af reynslunni, nánar tiltekið, hugs-
unina.^6
Á því leikur enginn vaft að margir sem spyrja spurninga eins og
„Hversvegna er heimurinn til?“ eða „Hversvegna erum við hér?“
mundu líka, að minnsta kosti í vissu hugarástandi, vera ánægðir með
guðfræðilegt svar, enda þótt þeir féllust ekki endilega á öll smáatriðin
í Tómasarguðfræði Gilsons. Leggja ber áherslu á að maður þarf ekki
að trúa á Guð til að nota „hversvegna“ á þennan hátt. Bandaríski
leikritahöfundurinn Edward Albee sagði til dæmis nýlega:
„Hversvegna við erum hér er spurning sem ógjömingur er að komast
til botns f‘. Allir í heiminum, hélt hann áfrarn „vona að til sé Guð“,
og seinna bætti hann við: „Ég er hvorki með né á móti
Guði“.17Spuming Albees „Hversvegna emm við hér?“ jafngildir ber-
sýnilega því að spyija hvort til sé Guð og, ef svo er, hvaða guðlegum
markmiðum mannlegum verum er ætlað að þjóna. Hann fellst ekki
afdráttarlaust á hið guðfræðilega svar, sennilega vegna þess að hann er
ekki viss um réttmæti þess, en hann álítur það vissulega skipta mjög
miklu máli.
Rétt er að taka það fram að fólk notar oft orðið „hversvegna" til að
láta í ljós eins konar allsherjar umkvörtun eða forundrun. í slíkum
tilfellum er það í raun og veru ekki að biðja um svar, guðfræðilegt
eða annað. Þessari notkun á „hversvegna“ svipar að sumu leyti til
hins guðfræðilega „hversvegna“ og er ekki fjarri lagi að kalla það hið
hálf- guðfræðilega „hversvegna". Einstaklingur sem er og telur sig
vera heiðvirða manneskju en býr við miklar þjáningar gæti hæglega
hrópað „Hversvegna þarf ég að þjást svona mikið þegar svo margir
skúrkar í heiminum, sem hafa aldrei unnið nærri því eins hörðum
höndum og ég, skemmta sér svona vel?“ Slík spuming getur vel
1 6 God and Philoslophy (Guð og heimspekin), op. cit., bls. 140.
New York Times, 21. jan. 1965.