Hugur - 01.01.1996, Blaðsíða 10

Hugur - 01.01.1996, Blaðsíða 10
8 Kristján Kristjánsson bók íslendingsins að sjálfsögðu „Sögur af sérkennilegum fílum“.* 2 Ef til vill helgast hinn eldlegi áhugi íslendinga á heimspekilegri siðfræði einna helst af því að í fáum öðrum greinum fléttast betur saman vísdómurinn og sögumar. Ýmsir hafa orðið til þess að bæta röklegum skýringum við þá sögulegu sem Þorleifur gaf okkur í upphafi um gildi dæmisagna í heimspeki. Rithöfundurinn og heimspekingurinn Iris Murdoch útmálar gildi þess að læra að týna sjálfum sér í örlögum annarra til þess að byggja upp eigið siðvit og slíkt verði aðeins gert í heimi sagna;3 skáldið Shelley hafði löngu fyrr orðað skylda hugsun svo að raunveruleg siö-gæði yltu á ímyndunaraflinu: kostinum að geta sett sig til hlítar í spor annarra áður en maður styngi hendinni í eigin barm.4 Og nýlega las ég býsna sannfærandi grein þar sem þessi rök og önnur vora notuð til að hnýta að þeirri hugsun að hæfileikinn að geta sagt sjálfum sér og öðrum sögur væri nauðsynlegt skilyrði þess að teljast siðferðisvera.5 Páll Skúlason komst raunar að svipaðri niður- stöðu í snjallri ritgerð fyrir nokkrum árum, ritgerð er byrjar í nokkurri straumiðu sem andóf gegn hinu einhliða ástfóstri íslendinga við „sögur af einkennUegum fílum“, en siglir að lokum inn á þann lygna vog að heimspekinni sé „ekki einungis ókleift að leysa frásagnar- hugsunina af hólmi eða koma í hennar stað, heldur nærist hún sífellt á henni... “6 Vel mætti það verk leggjast fyrir hérlenda heimspekinga að taka upp þráðinn þar sem Páll sleppti honum og rökræða frekar um heimspekiiðkun íslendinga í Ijósi hins gjöfula bókmenntaarfs okkar og ríku sagnhefðar. Það verður ekki verkefni mitt í þessari ritgerð - c\ z Skrýtlan var þó upphaflega norsk. Var rúsínan í pylsuenda hennar þá sú að Norðmaðurinn skildi aldrei út á hvað málið gekk og skrifaði einfaldlega bók er hét Norge og vi nordmenn\ 3 Murdoch, I., The Sovereignty of the Good (London: ARK Paperbacks, 1985), bls. 84. 4 Shelley, P. B., „A Defense of Poetry“, í Criticism: The Major Statements, ritstj. Kaplan, C. (New York: St. Martin's Press, 1975), bls. 355. 3 Tirrell, L., „Storytelling and Moral Agency“, The Journal of Aesthetics and Art Criticism, 48 (1990). 6 „Hugleiðingar um heimspeki og frásagnir", Pœlingar (Reykjavík: Ergo, 1987), bls. 37. Líkingin um „fílasögumar" er þó mín en ekki Páls.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Hugur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.