Hugur - 01.01.1997, Page 28

Hugur - 01.01.1997, Page 28
26 Stefán Snœvarr HUGUR dæminu er orðið „úlfíir“ skjárinn og rákimar aukamerkingar („kon- notosjónir") orðsins. Maðurinn er þá stjörnurnar, við sjáum mann- skepnuna í ljósi aukamerkinganna. Lítum á annað dæmi. Segjum að við lýsum bardaga með máli taflsins. Það mun þýða að við leggjum áherslu á vissa þætti bardagans en stingum öðrum undir stól. Taflmálið síar og umbreytir því sem lýst er. Sársauki, hræðsla og grimmd bardagans sleppa ekki gegnum þessa síu. Myndhvörf líkjast meira kortum og líkönum en lýsandi staðhæfingum. Þau eru ekki jafngild endanlegri röð sannra staðhæfinga. í vísindum segja myndhvörf það sem ekki er hægt að segja með öðrum hætti, segir Black.32 Ekki þarf mikla skarpskyggni til að sjá tengslin milli víxlhrifa- kenningarinnar og minnar. Hvað er það í vísindunum, sem ekki er hægt að tjá með öðru en líkingamáli, annað en þögul þekking? Ég held líka að skáldlegt líkingamál og mælskubrögð breyti viðfanginu á vissan hátt, líkt og myndhvörf breyta því að mati Blacks. En þessi myndbreyting viðfangsins þarf ekki að draga úr þekkingargildi skáldskaparins. Þegar eðlisfræðingurinn notar stærðfræði sem net til að veiða veruleikann umbreytir hann honum líka. Efnisheimurinn sjálfur er tæpast stærðfræðilegs eðlis en eðlisfræðingar nota stærð- fræðina sem síu á skynreynsluna og láta það er ekki kemst gegnum síuna lönd og leið. Til þess að mynda heiminn verður að afmynda og ummynda hann, því má beita myndhvörfum við myndatökuna! Nú ber þess að gæta að talsverður munur er á skáldlegum og vísindalegum myndhvörfum. Breski heimspekingurinn Mary Hesse segir réttilega að þau síðarnefndu séu að jafnaði hnitmiðaðri og nákvæmari.33 Skáldleg myndhvörf eru gjaman mótsagnakennd og 32 Max Black: „Metaphor," m.a. í Models and Melaphors (Ithaca 1962), bls. 25-47; og „More about Metaphors" í Andrew Ortonny (ritstj.), Metaphor and Thought (Cambridge 1979), bls. 19-42. Donald Davidson vegur að kenningum Blacks og segir að metafórísk merking sé ekki til. Hins vegar geti myndhvörf haft ákveðin áhrif á okkur, t.d. fjörgað fmyndunaraflið. En þótt góður brandari geti komið okkur í gott skap þá myndi enginn segja að til væri sérstök brandaramerking. Sjá „What Metaphors Mean“ í Truth and Interpretation (1984), bls. 245-264. Black svarar svo fyrir sig í „How Metaphors Work: A Reply to Donald Davidson" í Sheldon Sacks (ritstj.), On Metaphor (Chicago og London 1979), bls 181-192. Ég ræði kenningar Blacks og Davidsons í óbirtri grein „Fra Logos til Mytos. Om metaforer i vitenskapene i lyset av Max Blacks interaksjonsteori.“ 33 Mary Hesse: „The Explanatory Function of Metaphor“ í Models and Analogies in
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.