Hugur - 01.01.1997, Page 41

Hugur - 01.01.1997, Page 41
HUGUR Leikreglur og lífsgilcLi 39 af óeigingjörnum hvötum - og spyrja hver séu skilyrði þess að slík breytni sé möguleg. Höfuðniðurstaða hans er sú að einungis hug- myndin um sjálfrœði viljans geti skýrt þessar forsendur. Sjálfræði mannsins birtist í því að hann getur sett sér almennar reglur sem hann kýs að fylgja af „prinsipástæðum,“ eins og sagt er. Með því að breyta með þessum hætti í samræmi við alhæfanlegar hugmyndir um rétt og rangt losar einstaklingurinn sig undan eigingjömum tilhneigingum og utanaðkomandi áhrifum og verður sjálfur höfundur athafna sinna. Kant gerir þannig lögmál frelsisins, eins og hann nefnir þau, að grunni siðfræði sinnar. Með þessum hætti losar hann eiginlegar siðareglur úr viðjum viðtekinna lífsgilda. Svo aðeins eitt dæmi sé nefnt um mikilvægi þessarar hugmyndar, þá felur hún það í sér að öll siðaboð sem helgazt hafa af sögulegri hefð verða að standast próf siðrænnar skynsemi til þess að binda menn siðferðilega. Það er einkum tvennt í málflutningi Kants sem hefur verið afdrifaríkt fyrir siðfræðilega umræðu alla tíð síðan. Fyrra atriðið er það sem kallað hefur verið alhœfingarlögmálið. Inntakið í því er sú siðferðilega krafa að menn breyti jafnan eftir þeirri siðareglu sem þeir geta röklega viljað að muni gilda sem almennt lögmál. Með þessari kröfu gerir Kant það að lykilatriði í siðfræðilegri hugsun að menn leitist við að breyta eftir reglum sem sanngjamt er að gangi jafnt yfir alla. Þar með eru menn knúnir til að hugsa um og efla þá hagsmuni sem fólk á sameiginlega og hægt er að verja með fullri samkvæmni. Kenning Kants um alhæfingarlögmálið hefur vissulega margvísleg vandkvæði í för með sér, en ég tel að með því hafi hann samt sem áður lagt fræðilegan homstein þeirrar hugmyndar sem hefur gegnt þýðingarmestu hlutverki í gervallri siðfræðilegri hugsun síðan. Hin lykilhugmyndin í siðfræði Kants - sem hann lítur raunar á sem aðra úgáfu sama siðalögmáls - er venjulega kennd við kröfuna um virðingu fyrir persónunni. I framsetningu Kants hljómar hún á þessa leið: Komdu aldrei þannig fram við nokkra manneskju, sjálfa þig eða aðra, að þú sért bara að nota hana í einhverju skyni, heldur ber þér að koma fram við hverja manneskju jafnframt sem markmið í sjálfu sér.6 6 H. J. Paton, The Moral Law. Kant's Groundwork ofthe Metaphysics of Morals, s. 91.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.