Hugur - 01.01.1997, Page 31

Hugur - 01.01.1997, Page 31
HUGUR 9. ÁR, 1997 s. 29-35 Anthony Kenny* Descartes fyrir byrjendur** Út allar miðaldir í Evrópu var Aristóteles hið óumdeilda kennivald í vísindum; fyrir heilögum Tómasi frá Akvínó var hann heimspek- ingurinn; fyrir Dante var hann „meistari þeirra sem vita.“ A fyrri helmingi sautjándu aldar breyttu verk franska heimspekingsins René Descartes þessu ástandi til frambúðar. Descartes fæddist árið 1596, um það leyti sem Shakespeare var að skrifa Hamlet. Siðaskiptin höfðu skipt Evrópu í herbúðir mótmælenda og kaþólskra manna: sjálfur tók hann þátt í trúarbragðastyrjöldunum. Þótt hann fæddist og dæi kaþólskur, bjó hann mestalla ævi í Hollandi mótmælenda en ekki í heimalandi sínu, hinu kaþólska Frakklandi. Descartes var að tvennu leyti ólíkur heimspekingunum sem voru uppi á öldunum á undan honum. Hann var leikmaður bæði í hinni klerklegu og faglegu merkingu. Allir hinir miklu heimspekingar mið- alda höfðu verið kirkjunnar menn - prestar, biskupar, munkar - en Descartes var hins vegar heimsmaður, „lausamaður" sem lifði á eignum sínum. Og þótt allir miðaldaheimspekingamir hefðu verið há- skólaprófessorar sem kenndu á fagmáli hélt Descartes aldrei á ævinni fyrirlestur en skrifaði oft fyrir hinn almenna lesanda. Frægasta verk hans, Orðrœða um aðferð, var ekki skrifað á latínu hinna lærðu heldur á góðri tilgerðarlausri frönsku svo að „jafnvel kvenfólk,“ eins og hann komst að orði, gæti skilið hana. Descartes var mjög óvenjulegur snillingur. Nú á dögum eru það hin heimspekilegu verk hans sem eru mest lesin. A hans dögum byggðist orðstír hans ekki síður á hinum stærðfræðilegu og vísindalegu verkum hans. Hann lagði grundvöllinn að hnitarúmfræði og „cartesísku“ * Höfundur þessarar greinar, Anthony Kenny, er mikilvirkur og mikilsvirtur enskur heimspekingur sem hefur skrifað bókina Descartes: A Study of His Philosophy (1968) og Wittgenstein (1973). Hann er hálærður í heimspeki miðalda og liggur mikið eftir hann á þeim vettvangi. (Þýð.) ** Greinin var upphaflega erindi flutt í breska útvarpið (1978) og er prentuð í ritgerðasafninu The Heritage ofWisdom eftir Kenny (1987). (Þýð.)
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.