Hugur - 01.01.1997, Síða 124
Skýrslur
stjómar Félags áhugamanna um heimspeki
20. starfsár (1995-1996).
Aðalfundur félagsins var haldinn 13. maí og urðu nokkrar breytingar á
stjóminni, sem eftir fundinn var skipuð eftirfarandi: Ágúst H. Ingþórs-
son, formaður, Haraldur Ingólfsson, ritari, Magnús Stephensen, gjald-
keri, Egill Amarson og Skúli Pálsson. Var um töluverða endurnýjun
að ræða, en Gunnar Harðarson hætti sem formaður eftir 4ra ára starf
og Ásgeir Brynjar Torfason hætti sem gjaldkeri.
Alls vom haldnir fjórir opinberir fyrirlestrar og tvær samdrykkjur á
starfsárinu. Fyrsti fyrirlesturinn var í samvinnu við heimspekideild
Háskóla íslands eins og títt er þegar um erlenda fyrirlesara er að ræða.
Það var 10. september sem István Magyari-Beck flutti fyrirlestur er
nefndist „Arts, Sciences and the Spiritual Drugs,“ en þar gerði höf-
undur grein fyrir rannsóknum sínum á stöðu og gengi nútíma-
menningar á frjálsum markaði. Þann 21. október var einnig erlendur
fyrirlestur á vegum félagsins og heimspekideildar og var þar á ferðinni
gestaprófessor frá háskólanum í Genúa að nafni Valeria Ottonelli.
Flutti hún fyrirlestur sem nefndist „Robert Nozick’s theory of punish-
ment“ og fjallaði um réttarheimspeki. Næstu tveir opinbem fyrirlestrar
á vegum félagsins vom með skömmu millibili: Þann 25. nóvember
flutti Kristján Kristjánsson fyrirlestur sem hét „Af tvennu illu - um
klípusögur, nytjastefnu og dygðafræði“ - og birtist hann í 8. árgangi
Hugar. Þann 2. desember talaði annar ungur íslenskur heimspekingur,
Svavar Hrafn Svavarsson, um kenningu Aristótelesar undir fyrir-
sögninni „Farsæld, dyggð og siðferði.“ Var sá fyrirlestur í tilefni
útkomu íslenskrar þýðingar á Siðfrœði Níkomakkosar sem Svavar
þýddi.
Eftir óhóflega langt jólafrí hélt félagið myndarlega og gríðarlega
vel sótta samdrykkju um Nietzsche. Tilefnið var útkoma bókarinnar
Handan góðs og ills á íslensku. Þeir Vilhjálmur Árnason, Kristján
Ámason og Arthúr Björgvin Bollason fjölluðu og rökræddu um þessa
bók og kenningaheim Nietzsches við góðar undirtektir. Var það