Hugur - 01.01.1997, Page 126
124
Skýrslur stjórnar
HUGUR
kenningar þeirra K.-O. Apels og Jiirgens Habermas um samband
boðskipta og skynsemi.
í upphafi nýs árs, þess tuttugasta og fyrsta í sögu félagsins, var
haldin samdrykkja um mannréttindi. Þar töluðu tveir áhugamenn um
heimspeki, þau Hjördís Hákonardóttir og Ágúst Þór Ámason, en bæði
eru þau félagsmenn. Atli Harðarson hafði tekið að sér að vera
advocatus diaboli en í lok janúar er allra veðra von og varð því for-
maður félagsins að hlaupa í skarðið. Var samdrykkjan haldin í Kom-
hlöðunni og tókst með ágætum. Meðal þeirra spuminga sem rætt var
um vom: Hver em rökin fyrir mannréttindum? Er einhver heimspeki-
legur flugufótur fyrir mannréttindum? Fjórði reglulegi fyrirlestur
starfsársins var síðan haldinn 6. mars af Michele Marsonet, prófessor
við háskólann í Genúa, en hann var gistikennari um hríð við Háskóla
íslands. Nefndist fyrirlesturinn „Richard Rorty’s Ironic Liberalism
and its Dangers“ og fjallaði um gagnrýni Rortys á vestræna
heimspekihefð í bókinni Philosophy and the Mirror ofNature. Síðasti
fyrirlestur starfsársins var síðan 19. apríl þegar Atli Harðarson sté í
pontu og hélt fyrirlestur sem nefndist „Hámarksríki, lágmarksríki og
málamiðlun Lockes."
Því miður tókst ekki að koma út tímariti félagsins á vormánuðum
1997 eins og til stóð. Hugur varð því að bíða haustsins og næsta
starfsárs. En þrátt fyrir nokkra töf er tímaritið þó væntanlega búið að
festa sig í sessi þegar út hafa komið níu árgangar. Sú staðreynd að
áhugamannafélag stendur að útgáfunni setur þó alltaf svolítinn svip á
og tíð ritstjóraskipti auka hættuna á að útgáfan tefjist.
Á þessu afmælisári félagsins var komið upp heimsíðu þess á alnet-
inu þar sem ætlunin er að setja fram dagskrá og tilkynningar hverju
sinni og reyna að byggja upp gagnlegan vef fyrir þá áhugamenn um
heimspeki sem nýta sér vefínn. Eru heimspekingar þar framarlega og
má víða finna mjög áhugaverðar heimspekisíður. Heimasíðu félagsins
má finna á http://www.rthj.hi.is/annad/fah. Það er e.t.v. verðugt verk-
efni fyrir félagið á upplýsingaöld að teyma saman áhugamenn um
heimspeki með þeim hætti sem netið og vefurinn bjóða uppá.
Ágúst Hjörtur Ingþórsson