Búnaðarrit - 01.08.1916, Page 75
BÚNAÐARRIT
233
lækkar aftur í verði. Landið má ekki vera án korn-
forðabúra á einhvern hátt, a. m. k. meðan heyásetnings-
málið er ekki lengra á veg komið hjá okkur en enn er
orðið, og jafnvel hvort sem er — líka til bjargar fyrir
mcnn í ísaárum. Hefir það sést í vor, hversu mikilsvert
það var, að landið átti nokkurt korn, sem senda mátti
þangað, sem brýnust var þörfin. Hvernig hefði farið,
ef ís hefði verið fyrir landi ?
Félagatal. Nýir félagar árið sem leið voru 74, og
það sem af er þessu ári 45. Félagatalan alls er nú
komin eitthvað á 14. hundraðið.
Jón H. Þorbergsson fjárræktarmaður hélt fyrirlestur
um fjárdauðann 1914.
Þá var borin upp og samþykt með samhljóða at-
kvæðum svolátandi tillaga:
„Fundurinn skorar á landsstjórnina að gera
það sem auðið er til þess, að sém minst vand-
ræði hljótist af því fyrir landið, ef útflutningur á
saltkjöti til Norðurlanda verður algerlega stöðvaður
og Englendingar vilja ekki ganga í kaupin.
Ennfremur skorar fundurinn á landsstjórnina
að láta þegar í stað rannsaka markaðshorfur í
Englandi fyrir kælt og freðið kjöt og sauðfé héðan
og gangast fyrir því, að tilraunir í þvi efni, að
opna oss slíkan markað þar, verði byrjaðar þegar
næsta haust".
Tillagan var frá Eggert Briem, bónda í Viðey, en
orðunum „og sauðfé" bætt inn í eftir tillögu Bjarnar
hreppstjóra Bjarnarsonar í Grafarholti.
Jón H. Þorbergsson vakti máls á nýbýlamálinu..
Áleit að hægt væri með styrk af almannafé að fjölga
sjálfstáeðum býlum, án þess að með því væri mein gert