Hlín - 01.01.1924, Side 10

Hlín - 01.01.1924, Side 10
8 Hlin landið sem mest af innlendum kartöflum. Ennfremur að stuðla að því, að fólk geti fengið keypt útsæði á vorin.c: Framsögukona óskaði eftir, að konur á fjelagssvæðinu gerðu það heit að gróðursetja trje við heimilin hvert sinn, er þeim fæddist barn, og kendu svo börnunum að ann- ast sitt trje, jafnskjótt og aldurinn leyfði, og Ijetu þær hugsjónina ganga í arf til sona sinna og dætra. Myndi þetta besta ráðið til þess, að með tímanum risi upp trjá- lundur við hvert heimili. Sambandsfundurinn sendi stofnanda og heiðursfjelaga S. N. K., Halldóru Bjarnadóttur, kveðjuskeyti. * IX. Heilbrigðismál: Lagði form. S. N. K. svohljóðandi tillögu til umræðu: »Hjúkrunarfjelagið »Hlíf« skorar á S. N. K. að semja ávarp til væntanlegs læknafundar á Akureyri nú í sum- ar, og sje nefnd falið að koma því inn á fundinn. Ávarpið sje þess efnis: 1. Að fá álit læknafundarins um þörf heilsuhælis á Norðurlandi. 2. Um heppilegan stað fyrir hælið.« Fundurinn kaus þær Kristbjörgu Jónatansdóttur, Önnu Magnúsdóttur og Aðalbjörgu Benediktsdóttur til að semja ávarpið. Ávarpið var síðan lesið upp og samþykt og stjórn S. N. K. falið að koma því fram. — Margar tillögur komu fram frá ýmsum fjelagsdeildum og einstök- um konum til eflingar Heilsuhælissjóð Norðurlands. Að lokum var samþykt svohljóðandi tillaga: »Fundurinn lítur svo á, að í þeim ýmsu tillögum, sem fram hafa komið í umræðum fundarins, hafi falist margar ágætar hugmyndir til eflingar Heilsuhælissjóðn- um, er Sambandinu sje skyit að halda vakandi, en telur heppilegast, að hver deild sje sjálfráð um hvaða leið hún velur sjóðnum til eflingar ár hvert.« * Halldóra sendi fundinum heillaóskaskeyti frá Noregi, en af því fundurinn var haldinn með fyrra móti, kom það um seinan,

x

Hlín

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.