Hlín - 01.01.1924, Qupperneq 26
24
Hlín
Hjer þurfa mörg hliðstæð öfl að vera samtaka, ef vel
á að fara, og taka á því sem þau hafa til.
Ungmennafjelag íslands hefir í nærfelt öllum deildum
sínum unnið að h.iðnaði: námsskeiðum, sýningum o. s.
frv. og varið til þess miklu fje.
. Heimilisiðnaðarfjelögin starfa að sjálfsögðu að sömu
hugsjón. — Mörg kvenfjelögin — ekki einungis S. N. K. —
hafa þetta mál á dagskrá sinni. Stendur þar fremst í
flokki Thorvaldsensfjelagið í Reykjavík, sem um hálfrar
aldar skeið hefir með frábærri elju og skyldurækni helgað
þessu máli krafta sína. — Pað væri afar mikils virði að
fá það fjelag með í þessa samvinnu, þó ekki væri annars
vegna en, hve kunnugt það er góðum framleiðendum
víðsvegar um land.
Ressir þrír aðilar: Ungmennafjelögin, Heimilisiðnaðar-
fjelögin og Kvenfjelögin þurfa hjer að taka höndum sam-
an og hrinda þessu máli í gott horf, og láta sjer ekki í
augum vaxa, þótt nokkuð þurfi að leggja í sölurnar fyrsta
árið, meðan lagið er að komast á. — Pað mundi með
þessum samtökum hepnast að koma upp góðri útsölu á
Suður- og Norðurlandi, fyrst og fremst (éíðar kæmu
undirdeildir í fleiri bæjum).
Útsölurnar þurfa að geta keypt, gegn borgun út í hörtd,
vandaða vinnu og vel útlítandi, og hafa föst viðskifti við
góða framleiðendur um Iand alt. Útsölurnar eiga ekki að
þurfa að versla með annað en íslenska vinnu og svo
áhöld og efni til h.iðnaðar.
Komist útsölurnar á, þarf að koma því svo fyrir, að
sýnishorn gangi milli framleiðanda og kaupanda, og í
hverri sveit þarf einhver að vera, sem annast sendingar
frá og til útsölunnar, ef um pantanir er að ræða, einhver
sem vel má treysta, og sem hefir gott vit á vinnubrögðumi
Markaður erlendis. Eins og kunnugt er, flyst nú á seinni
árum ekki annað út úr landinu af íslenskum ullariðnaði
en sölusokkar og vetlingar úr óvönduðustu ull, sem