Hlín - 01.01.1924, Qupperneq 11
Hlln
9
Ennfremur samþykt svohljóðandi tillaga:
»Sambandið vill halda fast við þá stefnu, að sem
allra fyrst verði reist fullkomið heilsuhæli á Norðurlandi
fyrir 40 til 50 sjúklinga. Pó vill það ekki hvetja til að
farið verði fram á fjárveitingu nema ábyggilegar kostn-
aðaráætlanir sjeu fyrir 'hendi.«
X. Bindindismál: Frá Kvenfjelagi Svalbarðsstrandar kom
fram ósk um, að Sambandið tæki bindindismálið inn á
stefnuskrá sína, sem eitt af áhugamálum sínum. f tilefni
af þessari ósk gat formaður þess, að rjettast myndi, að
Sambandið fylgdi þeirri reglu, að hverju nýju máli, er
óskað væri eftir að tekið yrði á stefnuskrá Sambandsins,
væri fyrst vísað heim í deildir Sambandsins til umsagnar,
áður en fullnaðar ákvörðun yrði tekin. Voru fundarkonur
því samþykkar. En svohljóðandi tillaga var samþykt:
»Fundurinn skorar á konur á Sambandssvæðinu að
styðja af alefli bindindisstarfsemi og reyna af alefli að
innræta æskulýðnum viðbjóð á drykkjuskap.«
XI. Fundinum barst úrsögn frá Kvenfjelaginu »Aldan«,
Staðarbygð, Efs.
XII. Reikningar Sambandsins lesnir upp og samþyktir.
XIII. Gjaldkeri Sigriður Porláksdóttir kosin til næstu
þriggja ára.
formaður: Kristbjörg Jónatansdóttir, Akureyri.
gjaldkeri: Sigríður Þorláksdóttir, Akureyri.
ritari: Pórdís Ásgeirsdóttir, Húsavík.
formaður: Anna Magnúsdóttir, Akureyri.
gjaldkeri: Laufey Pálsdóttir, Akureyri.
ritari: Aðalbjörg Benediktsdóttir, Húsavík.
Næsti fundur ákveðinn á Siglufirði,
Stjórn-
ina
skipa:
Vara-
stjórn: