Hlín - 01.01.1924, Side 12

Hlín - 01.01.1924, Side 12
10 Hlín Fundargerðin Iesin upp og samþykt. Fundi slitið. Kristbjörg Jónatansdóttir. Pórdis Ásgeirsdóttir. Sigríður Porláksdottir. Eftir fundinn flutti Benedikt Björnsson, skólastjóri á Húsavík, erindi um uppeldismál. Þá söng flokkur skóla- barna undir stjórn söngkennara, frú Kristínar Blöndal, í kirkjunni fyrir fundarkonur. Að lokum hjelt Kvenfjelag Húsavíkur fulltrúum og fundargestum kaffisamdrykkju, og skemtu konur sjer fram á nótt við ræðuhöld og söng. Ávarpið til læknafundarins. Aðalfundur »Sambands norðlenskra kvenna« var að þessu sinni haldinn á Húsavík í Suður-Þingeyjarsýslu dagana 23.-25. júní þessa árs. Eins og venja er til voru þar rædd heilbrigðismál, og þá einkum stofnun heilsuhælis á Norðurlandi, sem um síðastliðið áraskeið hefir verið eitt af mestu áhugamálum norðlenskra kvenna. Varð það að samþykt á fundinum að biðja læknafund- inn um átit hans á þörf fullkomins heilsuhælis á Norður- landi, í fullu trausti þess, að læknarnir sjálfir hafi eld- heitan áhuga á því að ráða sem heppilegast fram úr hinu

x

Hlín

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.