Hlín - 01.01.1924, Blaðsíða 80
78
Hlin
Alt til þessa hafði það verið talið ókleyft að hita bæinn upp með
lauginni, af því að hún lá svo lágt. En Sveinbirni Jónssyni bygg-
ingafræðing á Akureyri tókst þetta á þann hátt að taka vatn úr
vatnsleiðslu hússins (hún á upptök sín í brunni nokkuð fyrir ofan
bæinn), og Ieiða það í Iöngum bogaæðum gegnum þró, sem höggv-
in er í móhelluhólinn rjett við sjálfa laugina, í þessa þró er heita
vatninu veitt. Lengd bognu vatnsæðanna er 80 m., en þvermál 1
þuml. — Æðarnar Iiggja í mörgum hringjum niðri í þrónni, sem er
1,20 m, á dýpt, 1 m. á breidd og 3 m. á lengd.
Frá bogaæðunum í þrónni Iiggur svo hjer um bil 70 m. Iöng
leiðsla heim í bæinn i venjulega miðstöðvarofna í herbergjunum. —
Leiðslan frá og að þrónni Iiggur um það bil 1 m. í jörðu. — Það
er hugmyndin að byggja síðar meir yfir þróna. — Hitunin fer þann-
ig fram, að kalda vatnið streymir eftir bogaæðunum. Þar hitnar
vatnið svo, að það verður jafnheitt vatninu í þrónni. — Vatnsþung-
inn þrýstir því svo áfram upp í bæinn, þar sem það skilar hitanum
út í herbergin gegnum vatnsofnana. Þegar vatnið hefir unnið sitt
hlutverk, er það leitt í lokræsi og rennur út í laugalækinn. — í eld-
húsinu má taká heitt vatn í mat og til þvotta. 10 ofnar eru í hús-
inu, 8 niðri og 2 uppi.
Að koma þessu í framkvæmd kostaði hjer um bil 2500 kr., og er
það álíka mikið og jafnstór venjuleg miðstöð hefði kostað.
Þú minnist í brjefi þínu á vorhreinsun okkar
kvenfólksins í þorpinu hjerna. Hún hefir verið
gerð árlega nú um nokkur ár að tilhlutun kven-
fjelagsins. — Að Iokinni vorhreinsun í húsum,
taka konurnar sjer hreinsunarhrífur í hönd og ræsta og þrífa kring-
um húsin, hver sína Ióð, svo ekkert verði eftir af rusli og drasli,
sem safnast vill á vetrum hjer og þar.
Jeg er viss um að þessi siður á erindi í fleiri smáþorp landsins,
og væri vel, að kvenfjelögin beittust fyrir því sem öðru til þarfa og
þrifa þjóðinni sinni.
Þórdls Ásgeirs-
dóttir á Húsavik
skrifar:
Af Fljótsdals-
hjeraÓi.
Þú spyr mig um tjaldið, sem við höfðum
veitingarnar í, sumarið sem þú heimsóttir okkur.
— Kvenfjelagið hjer á Völlunum kom því upp,
mig minnir að það færu í það 60 álnir* — Það er 5V2 m á hlið,
vegghæðin 1 */4 m. og hæð upp í mæni tæpir 3 m. — Við höfupi
lítið tjald, sett upp eins og skúr, áfast við stóra tjaldið, þar er hitað
kaffi, tekið til brauð og annað það sem úti er látið, og það rjett
inn um glugga á stóra tjaldinu, sem til þess er gerður.
* í þessi tjöld mætti nota togdúk, eins og tíðkaðist hjer áður.