Hlín - 01.01.1924, Qupperneq 40
38
Hlin
Alþýðu- og búnaðarskólunum er, eins
HússtjónwKtörf 0g öðrum heimavistarskólum, lífsnauðsyn
búnaðarskólaní að hafa 2óða matselÍu eða húsmóður,
svo mikið er þar í húfi vegna heilsufars,
sparnaðar og hollra áhrifa, að matargerð öll og umgengni
sje í sem bestu lagi.
Pað margborgaði sig fyrir skólana að hafa í þeirri
stöðu konu vel mentaða í verklegum fræðum og launa
henni þá að sama skapi vel.
Hún mundi, rneð góðri aðstoð, geta veitt nokkrum
(t. d. 6) ungum stúlkum fræðslu í öllum algengum heim-
ilisstörfum sem til fjellu. F*yrfti það ekki að verða skól-
anum neinn kóstnaður, þvert á móti, því nemendur ynnu
kauplaust, eins og tíðkast á hússtjórnarskólum, og borg-
uðu að nokkru eða öllu leyti fæði sitt. Sjerfræðslu nytu
þær að sjálfsögðu í næringarefnafræði, heilsufræði o. fl.,
sem kennari þeirra þarf að geta veitt þeim.*
Hússtjórnar- Mjer er kunnugt um, að nokkrar af
skólarieiguein- okkar ágætustu konum, konur íslenskar
stakra kvenna. [ anda og áhrifamiklar, ala þá von og
þrá í brjósti að geta komið upp dálitlum skóla í sveit,
er þær hafi algerð umráð yfir og allan veg og vanda af.
* Sambandsfjel. Suðurþingeyskra kvenna hefir fengið því ráðið, að
hússtjórnardeild (með 6 nem. eða svo) verður sett á stofn við
alþýðuskóla þeirra, sem nú er í smíðum. — Það er svo ráð fyrir
gert, að piltar sjái um og hirði föt sín og herbergi, venjist ekki
á að heimta alla þjónustu af konum.
Með samtökum ættu konur í Borgarfirði, á Hjeraði og á Vest-
fjörðum að geta komið því til leiðar, að hússtjórnarstörf yrðu
tekin upp sem námsgrein við alþýðuskóla þeirra.
Væri ísl. konum treystandi til að leggja þessari deild dálítið
fje, og ýmsar gjafir væri hugsanlegt að hún fengi, en konur ættu
á hinn bóginn að eiga fulltrúa í stjórn skólanna, svo að þær
stæðu í nánu sambandi við þá og kyntust þeim.
Það er ófyrirgefanlegt kæruleysi, að Blönduósskólinn, sem ein-
göngu er sóttur af konum, skuli enga konu eiga í stjórn skólans.