Hlín - 01.01.1924, Side 17

Hlín - 01.01.1924, Side 17
Hlin 15 Hvammstanga 1921, var um leið efnt til sýningar fyrir Vestursýsluna, og tóku allar fjelagsdeildir Kvennabandsins þátt í henni eftir mætti. Fjelagsdeildirnar afla sjer tekna með samkomum eins og gengur, en sumum hefir gefist vel að selja kaffi í rjettunum á haustin. Konurnar koma á vettvang með stórt tjald og annað úthald og veita kaffið óspart. Pykir mörgum þetta vel til fundið, því oft er mönnum hroll- kalt í rjettum, og hressing því kærkomin. Eitt af, því fyrsta sem Kvennabandið þarf að fram- kvæma, er að gangast fyrir kvenfjelagsstofnun á Hvamms- tanga, það má gera sjer von um öflugt fjelag í svo mannmörgu þorpi. Umsögn Jóninu S. Lindal formanns Kvennabandsins. Hjúkrunarfjelag Grýtubakkahrepps S. Þ. Hjúkrunarfjelagið »Hlín« var stofnað í Grenivík 24. okt. 1920. Stofnendur voru 30, en nú eru fjelagar 70.— Verksvið fjel. er að hjúkra sjúkum og hjálpa bágstödd- um. — Hjúkrunarkonu hefur fjel. kostað til náms, og starfar hún nú í þarfir þess. Fjel. hefur eignast eitt upp- búið sjúkrarúm og nokkur nauðsynlegustu hjúkrunargögn. Fjel. veitir mörgum ókeypis hjúkrun, það hefir einnig hjálpað fátækum með peninga, fatagjöfum o. s. frv. Fundi hefir fjel. 3 á ári, og skemta konur sjer þá við kaffidrykkju, söng, upplestur o. fl. — Til ágóða fyrir fjel. er haldin ein skemtisamkoma á ári, og utanfjelagsmenn rjetta því oft hjálparhönd. — Dýrtíð og aðrir örðugleikar hafa þröngvað kosti fjel. síðari árin, og hafa því störf þess orðið minni en ella, en vonandi eru betri dagar fyrir hendi, og »þá koma dagar og þá koma ráð.« M. B.

x

Hlín

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.