Hlín - 01.01.1924, Page 69

Hlín - 01.01.1924, Page 69
67 Hlln að hún gæti skorið úr þessari þrætu, Annar þessara bænda var góðkunningi Quðrúnar, og gamall búmaður þar, en hinn nýfarinn að búa og henni með öllu ókunnugur. »Jú, þó jeg sje nú slæm af gigtinni skal jeg reyna að staulast með ykkur inneftir.« Þegar þangað kemur, sjer hún að allir merkjasteinar eru vallgrónir, af því hlaust þrætan, en svo var hún minnug, að glögt mundi hún hvar þeir áttu að standa og sagði hún bændum: A þessa þúfu skuluð þið grafa, þar hygg jeg þið munið finna stein«, og kom þá í Ijós að Guðrún hafði rjett að mæla, þar kom fyrsti merkja- steinninn, og svo hjeldu þeir áfram að grafa eftir hennar fyrirsögn, þangað til allir merkjasteinarnir voru komnir í Ijós, og sást þá hve hún hafði verið glögg og minnug. Pökkuðu bændurnir henni fyrir og fóru hver heim til sín. Daginn eftir kemur sá maðurinn, sem hallast hafði á í skiftunum, suður í Miðbæ til Guðrúnar, og færir henni tvo óróna sjóvetlinga, annan fullan af kaffi, hinn af sykri, og þótti það höfðingleg gjöf í þá daga, kvað hann það lítinn þakklætisvott fyrir, hve vel og rjettvíslega hún hefði bundið enda á þetta deilumál, og þetta var einmitt nýi bóndinn og henni með öllu ókunnugur. »Vænt þótti mjer um gjöfina, en vænna þótti mjer um að kynnast þessum göfuglynda ágætismanni* sagði hún síðar (það var Bent sál. kaupmaður og bóndi í Flatey). Góður þótti Guðrúnu kaffisopinn, en bestur þó, þegar hún naut hans með öðrum, og var það í gamni haft í Flatey, að ef Guðrún sá einhvern ganga fyrir Miðbæjar- dyrnar, þegar kalt var, kallaði hún: »Komdu inn og þigðu kaffisopa, annars verður hann ónýtur á könnunniN Væri rituð æfisaga þessara systra, gæti það orðið góð- ur leiðarvísir til eftirbreytni. Ingibjörg Jónsdóitir frá Djúpadal. 5*

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.