Hlín - 01.01.1924, Qupperneq 76

Hlín - 01.01.1924, Qupperneq 76
74 Hlln og fagra liti, og hve haganlega, hreinlega og snyrtilega er frá öllu gengið. Þetta alt þurfum við að leggja okkur á hjarta og athuga vel. — Tóskaparullina þarf að þvo vel og flokka hana rækilega. Taka þokkalega ofan af allri ull sem á að nota í sölutóvöru, menn unna svo mýktinni, einkum útlendingar, og togið fer illa saman við þel, slítur því að sögn.* Það þarf að vanda samkembingu sjerlega vel. — Stundum kemur fyrir, að fólk sendir á útsölur höttótta sokka og vetlinga, og dýrar ábreiður með mislitum brigðum. — Það má ekki eiga sjer stað að gera þvílíka hluti að verslunarvöru, það stórspillir fyrir. — Ef hnökr- ar, mor eða væring er í prjónlesi eða fataefni, verður að tína það úr. — Það ber oft við, að tvinnaspottar, hár eða annað rusl hefir prjónast eða ofist í hjá fólki, sumir láta þetta sitja, slíkt má ekki líðast. — Verksmiðjurnar halda dýrt fólk árið um kring, sem ekkert annað gerir en tína hnökra og mor úr fataefnunum (það er notuð til þess lítil töng), þær mundu ekki láta sjer detta í hug að bjóða nokkrum manni efnin, án þess að aðgæta nákvæmlega hvern fer- þumlung. — Okkur er ekki minna ætlandi, en geta gengið almenni- lega frá því litla, sem við framleiðum af heimilisiðnaði til sölut — Útlendingum líkar ágætlega vel sauðarliturinn, þykir hann fallegur, en hann er ekki að öllu leyti varanlegur, sjerstaklega vill hann upp- litast í sterku sólskini. — Færeyingar, sem hafa mórautt fje eins og við, og nota ullina í fatnað og sokka (við stuttbuxur), sögðu mjer, að þeir kembdu dálítið af dökkbrúnni, litaðri ull saman við, reynist það vel, það var blæfallegt og sagður haldbetri liturinn. Steinlit (indigo) ættum við að fara að leggja okkur eftir að nýju, það er ljómandi litur, bæði einn sjer og í samkembu. Það er hægt að fá þann lit hjá H.iðn.fjel. Norðurl., Akureyri, og væntanlega verður hann líka fáanlegur í h.iðn.útsölu í Reykjavík. — Allir litir, sem notaðir eru, þurfa nauðsynlega að vera vel ekta og sjerlega vel þvegnir, svo ekki komi fyrir að þeir þámi hver af öðrum. Mörg- um gefst vel að þvo aðkeypta Iiti úr saltvatni. — Jurtalitir eru í miklu áliti hjá nágrannaþjóðum okkar, þeir sóma sjer ágætlega við svartan lit og við steinlitinn eins og áklæðin okkar sýna, sömuleiðis á hann vel við sauðarlitinn, hvort heldur er í dúkum (teinar) eða smárandir í prjónlesi. Þvott á söluvarningi þarf að vanda sem allra best, og ekki spara sápu og sóda til að fá það sem best hreint. Ef ekki er vandað til um þvottinn, vill verða ólykt af vörunni, og það má með engu móti eiga sjer stað. * Ef markaður fæst fyrir íslenska togið, yrði það eingöngu gröfa togið, stærstu lagðarnir. — Það þarf að vera sjerstaklega vel hreint.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Hlín

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.