Hlín - 01.01.1941, Blaðsíða 10
8
Hlín
er“. — Það er mikil þörf á að fá kennaradeild í verk-
legum fræðum, því hörgull er á kennurum við verk-
lega skóla í landinu.
SAMBAND BORGFIRSKRA KVENNA.
Síðastliðið ár var 5 kvenna nefnd, kosin af S. B. K.
starfandi, vann hún að undirbúningi húsmæðraskóla-
málsins í hjeraðinu. — Á s. 1. vori bætti Sambands-
fundur 4 konum við í nefndina. — Kvenfjelög hjeraðs-
ins hafa þegar lagt fram töluverðar fjárupphæðir til
skólans. — Skiftar skoðanir eru um skólastaðinn. Lagði
Húsmæðraskólanefndin því svohljóðandi tillögu fyrir
fundinn í vor og var hún samþykt: „Þar sem skoðanir
hjeraðsbúa eru mjög skiftar um það, hvort Reykholt
sje heppilegasti staðurinn fyrir væntanlegan hús-
mæðraskóla í Borgarfjarðarhjeraði, skorar fundurinn á
háttvirta ríkisstjórn að láta sem fyrst fara fram ná-
kvæma rannsókn á þeim stöðum í hjeraðinu, er helst
gætu komið til greina sem skólastaðir".
Það var tilkynt á fundinum, að hjónin, Ingunn
Sveinsdóttir og Haraldur Böðvarsson, útgerðarmaður á
Akranesi, hefðu gefið 10 þúsund krónur til byggingar
húsmæðraskóla á Akranesi og hreppsnefnd Ytri-Akra-
neshrepps hefði lofað 1000 krónum árlega næstu 10 ár-
in til byggingar skóla á Akranesi. — Ljet sambands-
fundurinn óspart lof í Ijós um þessar höfðinglegu gjaf-
ir. — Er því auðsætt að framvegis verður um tvo skóla
að ræða, annan uppi í hjeraðinu, hinn á Akranesi.
Þessi tillaga kom fram frá stjórn S. B. K. og var
samþykt: „Samkvæmt framkomnum upplýsingum í
húsmæðraskólamáli Borgarfjarðarhjeraðs samþykkir
fundurinn, að Akranes annist framvegis um sinn vænt-
anlega skóla án íhlutunar um skóla þann, er reistur
verður uppi í hjeraðinu. Hinsvegar æskir fundurinn
þess, að væntanleg húsmæðraskólanefnd á Akranesi