Hlín - 01.01.1941, Blaðsíða 94
92
Hlín
1 drotning.
1—2 hundruð karlflugur
og 20—50 þúsund vihnuflugur.
Hlutverk þessara flugnategunda í samfjelaginu er
sem hjer segir:
1. Drotningin. Hennar hlutverk er það eitt að verpa
eggjum, og viðhalda á þann hátt kynstofninum. Hún
gengur svo gersamlega upp í starfi sínu, að hún gefur
sjer ekki tíma til máltíða, heldur lætur hún þernur sín-
ar mata sig á fæðu, sem þær hafa áður melt að mestu
leyti, og þarf hún ekki einu sinni að leggja orku sína
í meltinguna. Hún er þvegin og snyrt af þernum sín-
um, og er eina flugan í þjóðfjelaginu, sem má leyfa
sjer að leggja frá sjer inni í búinu, en vinnukonur
hennar taka það samstundis og koma því frá. Það má
geta þess hjer, að umgengnin í búinu er með afbrigðum
góð, engin óhreinindi fá þar dvalarstað, þó að þau ber-
ist þangað inn, sem er lítt hugsanlegt. Deyi til dæmis
fluga iiini í búinu, er líkinu. tafarlaust varpað út.
Um hásumarið, þegar hunangstekjan er góð, verpir
meðallags dugleg drotning 1500 eggjum á sólarhring,
þó mun slíkt varp vera með nokkrum hvíldum á milli.
— Drotningin er stærst allra flugnanna og fegurst
sköpuð, bæði hvað form og lit snertir.
2. Karlflugan er til þess eins að frjóvga jómfrú
drotningu, ef hún kemur fram á sumrinu. Það er stór
og klunnaleg fluga, sem ekkert hefst að alt sumarið,
nema jeta alt það besta, sem vinnuflugurnar draga að
búinu, og baða sig í sólskininu, þegar veðrið er hlýjast
og best. — Ef svo ber undir, að andi búsihs ákveði að
skifta búinu eða ríkinu, þá gerist það á þann hátt, að
nýrri drotningu er klakið út. — Nú er það svo, að
aldrei getur verið nema ein drotning í hverju búi. —
Þegar gamla drotningin sjer, að ný drotning er í þann
veginn að koma fram á sjónarsviðið, og allar tilraunir