Hlín - 01.01.1941, Blaðsíða 95
HUn
93
hennar, til þes að drepa hana á fósturstiginu hafa mis-
tekist, yfirgefur hún ríki sitt með öllum þeim flugum,
sem vilja fylgja henni, og leitar sjer að nýjum bústað.
— Unga drotningin erfir ríkið með öllum þess forða
af hunangi og blómdufti. — Tveim dögum eftir að
unga drotningin er skriðin úr hýðinu, fer hún á stjá
út úr búihu. Sje þá sólskin og blíðuveður með heiðum
himni, leggur hún þegar í brúðkaupsflug sitt. Hún set-
ur stefnuna upp í heiðan himininn, og karlflugurnar,
sem hafa orðið hennar varar, fljúga þegar á eftir
henni, en af því að þeir eru þungir á sjer og óvanir við
langflug, gefast þeir fljótt upp, einn eftir annan, og
snúa heim aftur við svo búið. Loks verður aðeins einn
eftir, sá þolnasti og harðvítugasti. — Þar uppi, í tærum
himinblámanum, gefur unga meydrotningin sig á vald
hinum hrausta prinsi, og tekst nú hið innilegasta brúð-
kaupsfaðmlag hátt uppi í heiðum blámanum, hulið
sjónum allra jarðarbúa. — Að þessu brúðkaupi loknu,
fellur hinn hamingjusami prins dauður til jarðar. Hann
hefur gefið líf sitt öllum þeim ófæddu kynslóðum, sem
eiga eftir að fæðast út af drotningunni. — Þegar drotn-
ingin kemur heitn úr þessari brúðkaupsferð, er tekið á
móti henni með opnum örmum, og hún viðurkend sem
ein rjettmæt og fullvalda drotning búsins. — Nú er
hlutverki karlflugunnar lokið þetta sumarið, og líður
þá ekki á löngu þar til öllum karlflugum búsins er
safnað saman og þeir vægðarlaust teknir af lífi, til þess
að ljetta á fóðrunum.
3. Vinnuflugumar er sú tegund, sem mest ber á í
búinu, eins og fyr segir, þar sem þær geta orðið alt að
50 þús. í einu búi. — Vinnuflugurnar annast öll störf
samfjelagsins, bæði innan húss og utan, þær annast alla
aðdrætti utan húss, og er það auðvitað veigamesta
starfið. Innanhúss annast þær allar byggingar, sem í
sjálfu sjer er bæði mikið og merkilegt starf, þær halda