Hlín - 01.01.1941, Blaðsíða 14
12
Hlín
SAMBAND SUNNLENSKRA KVENNA.
Sambandið hefur jafnan margt verklegra námsskeiða
til og frá á sambandssvæðinu: Garðyrkjuleiðbeiningar,
grænmetismatreiðslu, sauma og vefnað. — Samhliða er
stefnt að því marki, að húsmæðraskóla verði komið
upp á sambandssæðinu.
S. S. K. ákvað á fundi sínum á Torfastöðum í vor
1941, að styrkja matreiðslunámsskeið fyrir barnaskóla-
stúlkur, hálfsmánaðartíma, seinasta veturinn fyrir
ferminguna. — Sambandið bauð kr. 150.00 hjálpar-
stúlkustyrk þeim fjelögum, sem vilja ráða stúlkur til
sín (fyrsta árið).
Ríkisstyrkurinn til S. S. K. var hækkaður upp í 3000
kr. fyrir árið 1942.
Að tilhlutun formanns S. S. K. var stofnað sýslusam-
band í Vestur-Skaftafellssýslu á árinu og gekk það
þegar í S. S. K. — Kvenfjelögin í V.-S. hafa ríkisstyrk
til verklegrar kenslu.
SAMBAND GULLBRINGU OG KJÓSARSÝSLU.
í sambandinu eru aðeins 4 fjelög, enda yngst sam-
bandanna, og hefur nú í fyrsta sinn lofun fyrir ríkis-
styrk (1942). Sambandið hefur lítið getað starfað enn
sem komið er, en fjelagsdeildirnar hafa verkleg náms-
skeið og ýmsa aðra starfsemi á prjónunum.
Þessar samþyktir voru gerðar á sambandsfundinum í
Garðinum í vor:
1. S. G. K. samþykkir að gera tilraun með útvegun
umferðarleiðbeinanda í verklegum fræðum á sam-
bandssvæðinu á árinu, og vill leita styrktar hjá Bún-
aðarfjelagi íslands og Búnaðarsambandinu.
2. S. G. K. samþykkir að skora á fjelagsdeildirnar
innan Sambandsins að ráða til sín, ef mögulegt er,
hjálparstúlku, og mun Sambandið styrkja hvert það fje-
lag, sem byrjar starfið, með 100 krónum byrjunarárið.