Hlín - 01.01.1941, Blaðsíða 71
HZtn
69
— Sem betur fór, urðu ungar stúlkur á Akranesi þess
aðnjótandi, að hún kendi þar fimm sinnum, þrjá mán-
uði í hvert sinn. — Urðu nemendur á námskeiðum
þessum nær 60 að tölu. Eru margar þeirra nú orðnar
húsfreyjur. Hefi jeg það fyrir satt, að heimili þeirra
beri furðu miklar minjar þeirra leiðbeininga og kenslu,
er þær nutu á námskeiðunum, þótt námstíminn væri
vitanlega alt of stuttur.
Auk þess hjelt Soffía allmörg styttri námskeið fyrir
húsfreyjur á Akranesi í matreiðslu grænmetis o. fl. —
Vorið 1939, í maímánuði, dvaldi hún og vikutíma í
Reykholti í Borgarfjarðarsýslu, ráðin af S. B. K. (Sam-
bandi borgfirskra kvenna), til þess að veita sýnikenslu
í matreiðslu húsfreyjum úr hjeraðinu, er þar dvöldu
þá sjer til hvíldar og hressingar. Skemti Soffía þá oft
á kvöldin með hljóðfæraleik, en konur sungu.
Fullu nafni hjet hún Anna Soffía og var dóttir sr.
Skúla Skúlasonar, prests í Odda, og konu hans, Sigríð-
ar Helgadóttur, lektors Hálfdanarsonar. — Soffía fædd-
ist í Odda 26. nóv. 1897 og var yngst 6 barna foreldra
sinna. — Hún ólst upp hjá foreldrum sínum í Odda, þar
til þau fluttu til Reykjavíkur í fardögum 1918. Dvaldi
hún jafnan eftir það á heimili þeirra, og eftir lát föð-
ur síns, árið 1933, með móður sinni nema þann tíma,
er hún dvaldi utan Reykjavíkur.
Árið 1920 sigldi hún til Kaupmannahafnar og dvald-
ist þar um tveggja ára skeið. Hún vann á skrifstofu
Morgunblaðsins árin 1922—1929, en fór þá til Danmerk-
ur ti'l matreiðslunáms. Var hún þar um tveggja ára
skeið á húsmæðraskólanum Ankerhus við Sórey og
víðar. Sigldi eftir það tvisvar eða þrisvar til skemri
dvalar, mest í Danmörku. — Á árunum 1931—1939
starfaði hún við matreiðslukenslu, mest í Reykjavík, en
auk þess á Eyrarbakka, Hafnarfirði og Akranesi, svo
sem áður er getið. Vorið 1939 lagðist hún í sjúkrahús