Hlín - 01.01.1941, Blaðsíða 130
128
Hlín
skýrslur í alla hreppa landsins nema þá, sem sýslu- eða
amtsbókasöfn voru í, og fylgdu fjölritaðar reglur um
færslu skýrslnanna. Beðið var um: 1. Afrit af lögum
eða reglugerð safnsins. 2. Eigandi safnsins. 3. Starfs-
svið. 4. Starfstími. 5. Útlán bóka.
Árið 1939 var ekki sótt um styrk handa almennum
bókasöfnum í 63 hreppum. — Skýrslur frá 68 söfnum
voru komnar fyrir 1. júní, en þá áttu þær að vera
komnar samkvæmt áður nefndu brjefi. — Stjórnend-
um þeirra safna, sem ekki höfðu sent skýrslur, var
skrifað og það brýnt fyrir þeim að senda skýrslur það
allra fyrsta, en þar sem það dugði ekki voru þær rukk-
aðar inn símleiðis og gekk það betur, en þó varð að
tala oft við stjórnendur margra safna. (Símtöl frá 1.
sept. til 23. okt. losuðu hundraðið).
Að þessu sinni bárust því skýrslur frá röskum þriðj-
ung safnanna á rjettum tíma, % þurfti því að rukka
inn. — Röskur helmingur þeirra heimtust fyrir þann
tíma, sem átti að úthluta styrknum. Hinn helminginn,
eða tæplega Vá af skýrslunum, tókst að sarga inn fyrir
áramótin með harðfylgi og eftirgangsmunum og vildu
þó allir fá styrkinn, enda var engum neitað, þó upp-
lýsingar kæmu seint.
Þær skýrslur einar, sem færðar eru á eyðublöðin,
voru teknar til greina, og því fylgt fast fram. Var þá
miklu fljótlegra að átta sig á skýrslunum og gott að
venja hlutaðeigendur á nákvæmni í skýrslugerð, en
margir þeirra eru unglingar, óvanir slíkri færslu, og
gætu þá skýrslur bókasafna orðið þeim þarfur skóli.
Skýrslugerð bókasafnanna hjer á skrifstofunni
mundi ekki minna verk en skýrslugerð barnaskólanna,
og þó sennilega meiri, meðan verið er að koma þeim í
fast horf, ef færslan væri svo ýtarleg sem vera bæri.
Margar skýrslurnar eru einkar greinilega færðar og
frágangur allur hinn prýðilegasti, en aðrar aftur á