Hlín - 01.01.1941, Blaðsíða 13
Hlín
11
er ráðin frá veturnóttum til sumarmála og hefur 45
krónur um mánuðinn í kaup, greiða fjelögin hvert fyr-
ir sig mánaðakaup úr sjóðum sínum, Sambandið hitt. —
Hjálparstúlkan starfaði 145 daga s. 1. vetur á 7 heimil-
um að ýmiskonar heimilisverkum, einnig að saumum.
— Dagkaupið var 1.00 kr. á dag, greiddist það inn að
mestu. — Mismuninn, ef einhver er, greiðir Sam-
bandið. Það sjer stúlkunni einnig fyrir dvalarstað,
greiðir henni fæðispeninga, þegar hún er ekki í starfi,
og ráðstafar ferðum hennar.
Sambandið hafði einnig vefnaðarkonu í 4 mánuði s.
1. vetur, sem fór á milli fjelagskvenna og óf fyrir þær,
leiðbeindi og festi upp vefi. Voru undirbúnir til vefn-
aðar 500 metrar fyrir fjelagskonur. — Fjelögin greiddu
kaup kennarans (80.00 kr. á mánuði).
SAMBAND AUSTUR-HÚNVESKRA KVENNA.
S. A. K. er ein deild í Sambandi norðlenskra kvenna.
— Sambandið hefur auk venjulegra starfa stofnað
minningarsjóð um fyrverandi formann sinn, frú Ingi-
björgu Björnsdóttur á Torfalæk, er andaðist á s. 1.
hausti. — Hefur safnast í sjóðinn á árinu á 2. þúsund
krónur.
Sambandið hafði aðalfund S. N. K. á sínum vegum á
Blönduósi í júní 1941.
SAMBABND AUSTFIRSKRA KVENNA.
Sambandið hefur þetta ár starfað mestmegnis að
verklegum námsskeiðum í fjörðum, hefur haft kenn-
ara á sínum vegum: Kristínu Sigfúsdóttur frá Seyðis-
firði, hefur hún haft 4 saumanámsskeið og sýningar að
þeim loknum. — Tvö ný fjelög hafa bæst í Sambandið
á árinu: Vopnafjörður og Mýrar í Austur-Skaftafells-
sýslu.