Hlín - 01.01.1941, Blaðsíða 112
110
Hlín
vikulega árásir á hann. — Auðvitað er ekki hægt að
komast hjá því að eyða nokkrum tíma í hreinsun ill-
gresisins, en ej: garðarnir eru litlir og menn kunna að
nota arfa-sköfu, er hægðarleikur að fara yfir 100 fer.m.
matjurtagarð á 2—3 tímum, miðað við að arfinn sje
hreinsaður vikulega, og á þetta við garða, sem eru í
hæsta lagi arfasæknir.
Jeg ætla ekki að lýsa hjer notkun arfa-sköfunnar, en
ráðlegg þeim, sem garð eiga, að fá sjer þetta einfalda
og ódýra áhald. En síðan verða menn að sjá unnið með
því af þeim, sem kunna, því galdurinn við það að útrýma
arfanum liggur fyrst og fremst í því að kunna að hand-
leika arfa-sköfuna, og hafa tíma, eða gefa sjer tíma, til
þess að sinna görðunum, þegar þörf krefur, en það er
áður en arfinn kemst í algleyming, helst áður en hann
sjest nokkuð að ráði.
Annað mjög þýðingarmikið atriði er það, að setja
strax niður í garðana og þeir hafa verið plægðir eða
stungnir, svo arfinn fái ekki ráðrúm að búa um sig,
áður en garðjurtirnar eru gróðursettar eða sáð til
þeirra.
Að lokum vil jeg svo vekja athygli manna á því, að
láta garðana ekki grænka af arfa á haustin, eftir að
tekið hefur verið upp úr þeim, en halda áfram barátt-
unni við arfann þar til yfir lýkur með frosti og snjó,
þá verður hann viðráðanlegri næsta sumar.
J. R.