Hlín - 01.01.1941, Side 141
Hlín
139
komið, sem fjelagið styrkir þá eftir megni. — En aðal verkefni
fjelagsins er að styrkja fátæka og sjúka á fjelagssvæðinu, er það
aðallega með gjöfum fyrir jólin ár hvert og í sjerstökum sjúk-
dómstilfellum. Auðvitað eru þetta ekki stórar upphæðir, en þessar
gjafir hafa oft komið sjer vel og fjelagið verið blessað fyrir þær.
— Heimilisiðnaðinn hefur fjelagið altaf látið sig miklu skifta^ það
gekst fyrir að tvær spunavjelar voru keyptar inn í hreppinn. —
Saumanámsskeið fyrir ungar stúlkur hefur það haft nokkur, og
áður en handavinna var lögboðin hjer við barnaskólann fjekk það
stúlku i mörg ár til að kenna börnum ögn að prjóna og sauma og
slepti ekki hendinni af því máli fyr en hreppurinn tók það að
sjer.* — Stúlku til að vefa fyrir fjelagskonur hefur fjelagið haft
núna siðastliðna 3 vetur, 6—8 vikna tíma ár hvert, og er það
ótrúlega mikið, sem unnið hefur verið, þó tíminn hafi ekki verið
lengri. — Þá höfum við haft sýningar á altskonar handavinnti,
er það uppörfun fyrir konurnar og altaf er hægt að læra hver
af öðrum. — Trjáreit hefur fjelagið, sem nú er 9 ára gam-
ail, var að nokkru leyti sáð birkifræi til að byrja
með, höfum við þannig haft nægar plöntur til að planta út í
hann allan. En þær reyni- og birkiplöntur, sem við fengum að og
gróðursettum, eru nú orðnar álitleg trje. Þarna komunt við kon-
urnar svo sarnan 1—2 daga á vorin til að vinna í garðinum. Er
það trú okkar og von, að þessi reitur, sem ber nafnið »Freyju-
Iundur«, eigi eftir að verða okkur og niðjum okkar til ánægju. —
Starfsstúlku hefur fjelagið ráðna sem það lánar fjelagskonum
eftir þörfum. Er óhætt að segja, að ekki sje vanþörf á að konur
geti fengið þessa hjálp, þó ekki geri betur en hægt sje að hjálpa
öllum, sem vilja fá stúlkuna. Er þetta starf okkar sjerstaklega
vinsælt, og viljum við ekki missa starfsstúlkuna fyrir nokkra
muni. — Stúlkan heftir kr. 125 fast árskaup, en er að öðrti leyti
ráðin eftir venjulegum kauptaxta. — Á næsta vetri er fyrirhugað
að ráða saumakonu til að sauma fyrir fjelagskonur heima á
heimilunum.
Um jólaleytið hefur fjelagið altaf jólatrjesskemtun fyrir börn,
og eina innbyrðis skemtun hefur það einu sinni á ári fyrir fje-
lagskonur og þeirra gesti. — Tvö siðustu árin höfum við tekið
upp þann sið, sem mörg fjelög hafa þegar gert, að hafa basar á
* Skólinn á nú saumavjel, sem Búnaðarsambandið styrkti kaup
á. — Það er kent að sauma og prjóna í skólanum og svo bók-
band, drengjunum. — Frú Þóra Stefánsdóttir, Hjalteyri, er í
fræðslunefnd. Ritstj.