Hlín - 01.01.1941, Blaðsíða 148
ÍSLENDINGAR!
Gerist fjelagar í hinu nýstofnaða Þjóðræknisfjelagi í
Reykjavík, Markmið þess er aukin savminna við landa
okkar vestan hafs.
Lestrarfjelög! Kaupið þær bækur og þau blöð, sem
landar vestra gefa út:
Vikublöðin „Lögberg“ og „Heimskringla“ eru gefin
út í Winnipeg. — Þessi blöð eru aðaltengiliðurinn milli
íslendinganna í hinni víðlendu Vesturálfu. — Það er
lífsskilyrði fyrir ísleneska tungu vestra, að blöðin geti
haldið áfram að starfa. — Bæði blöðin hafa runnið
hálfrar aldar skeið.
Tímarit Þjóðrœknisfjelagsins er nú yfir 20 ára gam-
alt. — Þeir, sem gerast fjelagar í Þjóðræknisfjelagi
íslendinga í Vesturheimi, fá ritið ókeypis.
Almanak Ólafs Thorgeirssonar, sem hefur verið gef-
ið út um 50 ár í Winnipeg, flytur árlega frjettir af
löndum vestra og hefur ýmsan annan fróðleik að geyma.
„Árdís“, ársrit bandalags lúterskra k'venna, gefið út
í Winnipeg. 9 hefti eru út komin.
„Sameiningin“, tímarit lútersku kirkjunnar vestan
hafs. Hefur verið gefið út yfir 50 ár.
Saga íslendinga í Vesturheimi. Fyrsta bindi þessa
rits kom út á s. 1. hausti, 350 bls. að stærð. — Gerist
áskrifendur, það tryggir framhald útkomunnar.
Hermannabókin, gefin út af kvenfjelagi í Winnipeg
eftir heimsstyrjöldina, þar eru skráð nöfn þeirra ís-
lendinga, sem tóku þátt í stríðinu 1914—18 (með mynd-
um). — Allar þessar bækur má fá með því að snúa sjer
til BÓKAVERSLUNAR ÞORSTEINS THORLACIUS-
AR, AKUREYRI. — Þar má líka greiða andvirði bók-
anna í íslenskum peningum.
ÍSLENDINGAR! Með því að kaupa þau blöð og þær
bækur, sem landar okkar vestan hafs gefa út, styðjið
þjer að sigursælli baráttu þeirra að viðhaldi íslenskrar
tungu, Viðhaldið sambandinu, það verður öllum íslend-
ingum, beggja megin hafsins, til blessunar.