Hlín - 01.01.1941, Blaðsíða 93
Hlin
91
Um bíflugur og bíflugnarækt.
Eftir
JÓNAS ÞÓR, verksmidjustjóra „Gefjunar
Halldóra Bjarnadóttir, ritstjóri, hefur beðið mig að
skrifa nokkur orð um bíflugur fyrir tímaritið „Hlín“.
Jeg vildi fúslega verða við þessum tilmælum af því að
mjer er efnið mjög hugstætt, en hins vegar lítil þekk-
ing á bíflugum hjer á landi, bæði á hátterni þeirra
og lifnaðarháttum og á nytsemi þeirra.
í nágrannalöndum okkar er þessu annan veg farið,
sjerstaklega í Noregi og Danmörku. Þar hafa verið
stofnuð fjelög til eflingar bíræktinni, og fjelögin aftur
stofnað landssambönd, sem hafa yfirumsjón með þess-
um atvihnuvegi. Landssamböndin halda uppi skólum
og námsskeiðum í bíflugnarækt með aðstoð frá ríkinu,
það gefur út bækur og tímarit með allskonar leiðbein-
ingum í bíflugnarækt, ásamt öllum nýjungum á þessu
sviði. Landssamböndin annast sölu á hunanginu, og
gefa út fyrirmæli um pökkun, vörumerki o. s. frv., og
sjá um að einungis gott og ósvikið hunang sje haft á
boðstólum.
í öllum menningarlöndum heims er bíflugnarækt
stunduð meira eða minna, og um bíflugur og bíflugna-
rækt eru til miklar bókmentir, og um bíflugur hafa
mestu ritsnillingar skrifað heilar bækur. Af því má
nokkuð marka, hve merkilegt dýr bíflugan er, bæði
lifnaðarhættir hennar og fjelagslegt fyrirkomulag.
Af því efnið er svo yfirgripsmikið, er ekki hægt
nema í örfáum orðum í lítilli tímaritsgrei'n að drepa á
nokkur atriði í lifnaðarháttum og fjelagslegu fyrir-
komulagi bíflugnanna.
X einu bíflugnasamfjelagi eru þrenskonar flugur: