Uppeldi og menntun - 01.07.2008, Blaðsíða 32

Uppeldi og menntun - 01.07.2008, Blaðsíða 32
32 gÓðUR kennAR I : Bekkjarstarf grundvallast augljóslega á persónulegum samskiptum. Kennarar hafa það hlutverk í skólanum að efla almennan þroska nemenda og búa þá undir að taka virkan þátt í lýðræðislegu þjóðfélagi (aðalnámskrá grunnskóla, 2006). Um leið er til þess ætlast af nemendum að þeir leggi sig fram í glímu sinni við margs konar ögrandi verkefni sem reyna á vitsmunalega, félagslega, siðferðilega og tilfinningalega hæfni þeirra. Þessar væntingar til kennara og nemenda, jafnt sem væntingar kennara og nemenda hverra til annarra, krefjast samvinnu sem byggist á gagnkvæmri virðingu. í samskiptum sínum við kennara læra nemendur ýmislegt um gildi og reglur sam- félagsins, um samskipti og um sig sjálfa, ekki aðeins með viðfangsefnum sem kenn- arinn leggur fyrir heldur af sjálfum samskiptunum við kennarann (t.d. Bruner, 1977; Krzywosz og Ross, 2004). Þar er kennarinn nemendum fyrirmynd. Viðhorf nemenda og framkoma hafa áhrif á kennarann og sömuleiðis hafa viðhorf og framkoma kenn- arans áhrif á nemandann og um leið á samskipti þeirra. Þannig eiga báðir aðilar þátt í að byggja upp samskipti sín og hlúa að þeim (sjá t.d. Good og Brophy, 2003). í þessari rannsókn eru hugmyndir grunnskólanemenda um góðan kennara kann- aðar. Tilgangurinn er að hvetja til þess að hugað verði í ríkari mæli að sjónarhorni nemenda til að styrkja samskipti nemenda og kennara þar sem þau eru mikilvægur þáttur í að efla nemendur persónulega, félagslega og í námi (t.d. Fullan, 2001; Pianta, 2000; Rudduck og Flutter, 2004; Sigrún aðalbjarnardóttir, 2007). Fræðilegur bakgrunnur Ýmsir hafa kannað hvað einkenni góða kennara, starfshætti þeirra og kennsluaðferðir (t.d. Brophy og Good, 1974; Moore, 2000; Stronge, 2002). Menntunarfræðingurinn alex Moore (2000) er einn þeirra og ályktar að til séu margir ólíkir en góðir kenn- arar og margar gerðir góðrar kennslu. Hann telur þó að í árangursríkri kennslu þurfi kennarar að vera sérfræðingar á eftirtöldum sviðum og teflir fram líkönum sem nota má til að skoða það sem einkennir góðan kennara. í fyrsta lagi er áhersla á kennarann sem persónu; persónulega eiginleika hans og samskiptahæfileika (the charismatic/ communicative model). í öðru lagi er áhersla á kennslufræðilega hæfni kennara, þ.e. þekkingu á þroska nemenda og inntaki greinarinnar, auk annarrar kennslufræðilegr- ar þekkingar og færni (the competence model). í þriðja lagi er lögð áhersla á ígrundun kennara í starfi með það fyrir augum að hann bæti kennslu sína og vaxi í starfi (the reflective/reflexive model). Fjölmargir fræðimenn telja það beinlínis hlutverk kennarans að skapa jákvæð per- sónuleg tengsl á milli kennara og nemenda. Uppeldis- og menntunarfræðingurinn Nel Noddings (2002 og 2005) er þekkt fyrir áherslu sína á umhyggju í skólastarfi. Hún heldur því fram að setja verði samskiptin í öndvegi til að styrkja nemendur vitsmuna- lega og siðferðilega; umhyggja ali af sér umhyggju. Ef athygli kennara beinist að þörf- um nemenda fyrir umhyggju, bæði félagslega og tilfinningalega, fylgi jafnframt betri námsárangur í kjölfarið. annað dæmi um áherslu á tengsl kennara og nemenda er að sálfræðingurinn Thomas Gordon (2001) telur jákvæð og gefandi samskipti kennara og nemenda mikilvægari en það sem kennt er, hvernig kennt er eða hverjum er kennt. Meginatriðið fyrir kennarann sé að finna leiðir til að skapa slík tengsl við nemendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.