Uppeldi og menntun - 01.07.2008, Síða 81

Uppeldi og menntun - 01.07.2008, Síða 81
81 AndReA HJÁlmSdÓTTIR, þÓROddUR bJARnASOn jafnréttisviðhorf með móðurmjólkinni (andrea Hjálmsdóttir, 2007). Rúmum þremur áratugum eftir kvennafrídaginn mikla virðist hins vegar sem unglingarnir séu að verða fráhverfari jafnréttissjónarmiðum en áður. Hefðbundin viðhorf unglinganna til verkaskiptingar á heimili kunna að einhverju leyti að helgast af raunverulegri verka- skiptingu útivinnandi foreldra þeirra, en einnig kunna slík viðhorf að endurspegla breyttan tíðaranda í samfélaginu og fortíðarþrá eftir þeim tíma þegar heimilisstörfin voru í öruggum höndum kvenna (sbr. Coontz, 1992). Árið 2000 voru samþykkt á alþingi ný fæðingarorlofslög sem hafa það að markmiði að koma á jafnvægi milli kynjanna á vinnumarkaði og á vettvangi fjölskyldunnar (Lög um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000; Ingólfur V. Gíslason, 2007). Fæðingar- orlof kvenna og ábyrgð þeirra á ungum börnum hefur oft verið nefnt sem ástæða fyrir lakari stöðu kvenna á vinnumarkaði (Ingólfur V. Gíslason, 2007) en vonast er til að fæðingarorlof feðra verði til þess að foreldrahlutverkið verði eðlilegri þáttur í skipulagningu vinnumarkaðarins. Þátttaka beggja foreldra í umhyggju- og heimilis- störfum hefur einnig uppeldislegt gildi. Karlar sem áttu útivinnandi móður eru að jafnaði virkari í sínu eigin fjölskyldulífi en aðrir karlar (Ingólfur V. Gíslason, 2007) og unglingar sem eiga heimavinnandi föður hafa marktækt jákvæðari viðhorf til jafnrétt- ismála en aðrir unglingar (Þóroddur Bjarnason og andrea Hjálmsdóttir, 2008). Flestir feður taka nú í það minnsta þriggja mánaða fæðingarorlof (Tryggingastofnun, 2008) en áhrif þess á jafnréttisviðhorf komandi kynslóða munu væntanlega koma í ljós á næstu áratugum. í þessu sambandi er athyglisvert að vorið 2006 ætluðu bæði drengir og stúlkur að eignast færri börn en jafnaldrar þeirra fyrirhuguðu árið 1992. Þessar breytingar eru í samræmi við minnkandi frjósemi á íslandi á þessu tímabili, úr 2,16 börnum á ævi konu árin 1986–1990 í 1,99 barn á ævi konu á tímabilinu 2001–2005 (Hagstofa íslands, 2008b). Vaxandi fylgni við hefðbundna verkaskiptingu milli feðra og mæðra virð- ist því ekki tengjast vaxandi áhuga á barnmörgum fjölskyldum. Þvert á móti virðist sem sá árgangur sem fæddist árið 1990, og stofna mun til eigin fjölskyldu á komandi áratugum, ætli sér að eignast heldur færri börn en sá jafnréttissinnaði árgangur sem fæddist 1976 og er að koma börnum sínum á legg um þessar mundir. Ný aðalnámskrá grunnskóla „leggur áherslu á að skólar búi bæði kynin undir þátt- töku í atvinnulífi, fjölskyldulífi og í samfélaginu“ (Menntamálaráðuneytið, 2006:9). Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að hér verði nokkuð á brattann að sækja. Ingólfur Ásgeir Jóhannesson (2004) telur raunar að hin svokallaða drengjaorð- ræða í skólamálum sé hluti af andófi því sem orðið hefur gegn femínisma á íslandi. Sú staðreynd að stúlkum gangi að meðaltali betur en drengjum í skólum sé túlkuð á þann veg að skólinn sé á einhvern hátt kvenlægur og andsnúinn drengjum. í þessu sambandi hafi sérstaklega verið bent á mikinn fjölda kennslukvenna í grunnskólum sem vandamál drengja. Ingólfur telur þessa umræðu til þess fallna að grafa undan jafnréttisaðgerðum í skólum og áhrifum femínista í samfélaginu öllu. Einnig hefur verið bent á að orðræðan um skilvirkni og mælanlegan árangur hafi dregið úr umræðum um jafnréttismál í skólastarfi (Guðný Guðbjörnsdóttir, 1992, 2001; Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 2004). Mismunandi rekstrarform grunnskóla hafa
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.