Morgunn - 01.06.1961, Qupperneq 14
8
MORGUNN
penna og blaði úr hendi hans og skrifaði bréf með nákvæm-
lega sömu rithendi og konan hans hafði haft í lifanda lífi
og á frönsku, sem hún hafði kunnað mjög vel en miðillinn
kunni ekkert í. Þessi tilraun var endurtekin margsinnis
með sama árangri.
Ýmsir hafa sannfærzt um framhaldslíf látinna manna
af svokölluðum andamyndum, þegar myndir látinna manna
koma fram á ljósmyndaplötu. Ég á þess ekki kost að fara
ýtarlega út í þetta efni. Vil aðeins geta þess, að til þess
miðils, sem kunnastur varð fyrir þessi fyrirbrigði, komu
menn með eigin ljósmyndaplötur sínar merktar og fóru
sjálfir með þær burt til framköllunar, án þess miðillinn
snerti á þeim.
Árið 1928 flutti próf. Einar Arnórsson ýtarlegt erindi
um þetta efni í S.R.F.Í. og birti það í Morgni með mörgum
myndum til skýringar, og voru lokaorð hans þessi: „Ekki
er við það að dyljast, að hugmyndir spíritistanna komast
langlengst í áttina til að skýra þessi fyrirbrigði. Og þegar
allt þetta efni er skoðað í sambandi við önnur sálræn fyrir-
brigði, þá virðist skýring spíritistanna alls ekki svo ó-
sennileg sem þeim mun sýnast, er ekki hafa kynnt sér
rannsókn á þeim til nokkurrar hlítar og enga reynslu hafa
sjálfir. 1 þeim fyrirbrigðum er svo fjölmargt, sem bendir
til þess að framliðnir menn séu að brúa, eða reyna að brúa
djúpið mikla milli þess tilvistarsviðs, sem vér svonefndir
lifandi menn erum á, og þess, sem þeir teljast vera komn-
ir á.“
Við ýtarlega athugun komst próf. Einar Arnórsson að
þessari niðurstöðu, og þannig hefur flestum þeim mönn-
um farið, sem lengst hafa stundað rannsóknirnar, og mér
er kunnugt um.
Ég hefi aðeins mjög lauslega getið hinna svonefndu
líkamlegu sálrænu fyrirbrigða, enda eru þau eklci nema