Morgunn


Morgunn - 01.06.1961, Page 20

Morgunn - 01.06.1961, Page 20
14 MORGUNN ilsfundi tjáðist hann vera kominn. Hann kvaðst hafa vei’- ið leynilega heitbundinn stúlku, sem hann nefndi fullu nafni, auk heimilisfangs hennar, og kvaðst óska þess, að hún fengi til minningar um sig slifsisnæluna sína, í næluna væri greypt perla. Enginn viðstaddur kannaðist nokkuð við þetta, eða yfirleitt að þessi stúlka væri til. Alllöngu síðar sendu hernaðaryfirvöldin foreldrum unga mannsins eftirlátna muni hans og plögg, sem hann hafði látið eftir sig. Þar hafði hann skrifað um þessa stúlku og þá ósk sína, að henni yrði send nælan sín með perlunni. Foreldrar unga mannsins fóru að leita og fundu stúlkuna eftir heimilis- fangi, sem í fórum hans fannst. Áður höfðu foreldrarnir enga hugmynd haft um trúlofun sonarins. Hvaðan var þetta komið ? Eru rök fyrir því að til mið- ilsins hafi getað borizt fj arhrif um þetta frá lifandi manni? Eða hvert átti undirvitund miðilsins að sækja þessa vitneskju? Þegar slíkum tilgátum er varpað fram, kemur mér stundum í hug það,sem próf. Þórður Sveinsson sagði einhverju sinni um þær, að „menn mættu ekki vera matvandir, ef þeim ætti að bragðast jafn illa soðinn og ólystugur getgátugrautur“. Eitt dæmi íslenzkt verð ég að fá að tilgreina, þótt mörg- um yðar muni kunnugt. Þegar síðasta aftaka hér á landi fór fram og þau Agnes og Friðrik voru hálshöggvin í Vatnsdalshólum árið 1830, voru höfuð þeirra lögum samkvæmt sett á stangir öðrum til viðvörunar. Höfuðin hurfu af stöngunum skömmu síð- ar, og sú saga barst út, þótt lágt færi, að húsfreyjan á Þingeyrum, Guðrún Ólsen, amma Bjöms prófessors, orð- lögð mannúðarkona, hafi fengið vinnumann sinn einn — eða tvo — á Þingeyrum til að taka ofan höfuðin með leynd og grafa þau í Þingeyrakirkjugarði. Þannig geymdist sagan með ættmennum Guðrú'nar ólsen. Mér er kunnugt um það, því að Guðrún var lang-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.