Morgunn


Morgunn - 01.06.1961, Side 23

Morgunn - 01.06.1961, Side 23
MORGUNN 17 að ræða, því að þau öfl, sem af vörum hennar töluðu, ræddu á öllum þessum tungumálum skynsamlega við er- lenda menn ,sem fundina sátu og áttu þessi mál að móður- máli. Ef vér eigum að gera ráð fyrir, að hugur miðils geti haldið uppi samræðum á tungumálum, sem miðillinn kann ekkert í, verðum vér að gera ráð fyrir því, að undirvitund miðilsins geti átt aðgang að og notað öll tungmál heimsins, forn og ný. En ég er ófáanlegur til að taka slíka hugmynd alvarlega. Fyrir þessu er ekki til snefill af sönnun. En þetta verða menn að geta sannað til þess að geta neitað því, að látnir menn standi á bak við þessa tegund miðla- fyrirbrigða. Ég fæ ekki betur séð en að menn komist lítt áfram með því að taka einstök fyrirbrigði, eitt og eitt að eigin vild, og leita skýringa á þeim hverju fyrir sig. Enda byggja spíritistar þá staðhæfingu sína, að samband við framliðna menn hafi sannazt eins vel og unnt sé að sanna slíkt, á niðurstöðum þeirra manna, sem hafa haft heild fyrir- brigðanna, en ekki einstök fyrirbrigði í huga og leitað skýringanna samkvæmt því. Á þetta lagði Einar Kvaran milíla áherzlu, og það sama vakir fyrir próf. Einari Arn- órssyni í ummælum, sem ég hefi áður vitnað til. Ég veit að ég er farinn að níðast á þolinmæði yðar, en framsöguerindi um svo margþætt mál verður að ætla nokk- urn tíma og raunar miklu meiri en þann, sem ég get haft hér til umráða. Og þótt fjölmörgu sé sleppt, verð ég enn að fá að víkja að tvennu. Ein tegund þeirra sönnunargagna, sem ýmsum þykir mjög gera fjarhrifatilgátuna ósennilega, eru hinar svo- nefndu bókasannanir. Eins og mörgum mun enn í minni var Guðmundur Kamban rithöfundur gæddur óvenjulegri 2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.