Morgunn - 01.06.1961, Síða 35
MORGUNN
29
og kaus dagleg^a eftir tilviljun teningsiiliðarnar, sem
hann ætlaðist til að upp kæmu, en móttakandinn, Dr.
Blundun, var í öðru héraði, Devon, kastaði þar tening-
unum og beitti sálorku sinni að því, að þær hliðar kæmu
upp, sem Fisk hafði hugsað sér sama dag. Til þess að
gera tilraunina flóknari, lét Fisk hana ekki vita, fyrr en
eftir á, þegar hann hafði fengið úrslit hennar send í
pósti, hvaða teningshliðar höfðu verið valdar dag hvern.
Hún varð því fyrst að fá vitneskjuna um það á telepat-
iskan hátt og síðan að fá réttar hliðar á teningunum
upp með beitingu sálarorku eða PK. Gerðar voru fimm
aðal-tilraunalotur, sem tóku alls sex ár og niðurstaðan
varð, að líkindin gegn tilviljun urðu 50000 á móti einum.
Svipaðar tilraunir eru nú gerðar við ýmsa háskóla eða
tilraunastöðvar.
Það ætti ekki að þurfa að taka fram, að tilraunir þess-
ar eru gerðar í návist gildra votta og með öllu fyrirbyggt,
að áhrifin milli sendanda og móttakanda geti borizt á
annan hátt en telepatiskan.
Slíkar tilraunir sem þessar, sem leitt hafa í ljós ótrú-
lega hæfileika til ESP milli lifandi manna, hafa dregið
mjög úr gildi hinnar spíritísku skýringar á miðilsfyrir-
brigðum, en að auki koma djúpvituð eða undirvituð
áhrif neðan úr hyljum sálarlífsins. Skal ég í stuttu máli
geta þeirra.
Á efnishyggjuöldinni týndist sálin úr sálarfræðinni,
sem varð lítið annað en upptugga úr líffræðilegum og
lífeðlisfræðilegum kennslubókum. Þrí læknar, Freud, Adler
og Jung, urðu til þess að finna hana aftur með því að
rannsaka djúpvitund manna. Freud reið á vaðið sem
kunnugt er og rakti ýmsar taugaveilur til kynhvatarinn-
ar eða libido, en það orð notaði hann síðar í mjög víð-
tækum skilningi. Kenning Freuds var í fyrstu reist á
vélgengishyggju, en á síðari árum var hann orðinn sann-
færður um ESP, m. ö. o. að ekki væri hægt að rekja
allt sálarlífið til líkamlegra fyrirbrigða. Adler setti fram