Morgunn - 01.06.1961, Page 53
M O R G U N N
47
sálfræðinga og sálsýkisfræðinga. Um þessi mál er þegar
búið að safna ógrynni gagna og að rannsóknum hefur ver-
ið unnið af mikilli elju, kostgæfni og nákvæmni. Um það
er ekki tími til að ræða hér. En þessar rannsóknir hafa
þegar leitt til þess, að fyllilega er sannað, að hin svonefndu
sálrænu fyrirbæri gerast í raun og veru. Þau eru stað-
reynd, sem enginn heilvita maður getur lengur leyft sér
að efast um. Um hitt er aðeins deilt, hvort eða að hve
miklu leyti fyrirbærin stafi frá framliðnum mönnum, séu
sönnun þess, að látinn lifir og geti haft samband við vini
sína hér, þegar viss skilyrði eru fyrir hendi. Niðurstaða
rannsóknanna er þessi, að svo að segja allir, sem lengst
og bezt hafa rannsakað þessi fyrirbæri, eru á einu máli
um það, að langsamlega eðlilegasta og sennilegasta skýr-
ingin á fyrirbærunum sé sú, að þau stafi frá framliðnum
mönnum. Sumt kunni að mega skýra á annan veg, en
sumt, og harla margt, sé þannig, að engum öðrum viðhlít-
andi skýringum verði þar við komið. Af þessu er Ijóst, að
þegar hefur stórfenglegum áfanga verið náð, þótt margt
sé enn ókannað. Nú er svo komið, að hver sem á annað
borð vill kynna sér þessi mál af alúð og fordómalaust, fær
ekki undan því komizt, að framhaldslífið sé ekki aðeins
sennilegt, heldur jafnvel betur og tryggilegar sannað, en
margt það, sem við nú teljum hafið yfir allan efa. 1 því
efni er það ekki fyrst og fremst hin einstöku dæmi, heldur
hin mikla mergð vottfestra atriða, sem öll benda eins og
beittar örvar í eina og sömu átt, sem úrslitunum veldur.
Gildi sálarrannsóknanna er að mínu viti í því fólgið,
að þær með hverju ári sem líður, eru með sterkari og fleiri
i'ökum að leið í ljós þann sannleika, sem fólginn er í þeirri
íornu sögn, sem ég áðan sagði, að guðsneistinn er fólginn
í brjósti mannsins sjálfs, að líf hans er ekki „hverfandi
ský á hveli fleygra stunda“, heldur á hann eilífðareðlið
í sér varandi. Og sú vissa á og mun ekki aðeins veita hon-
um nýja lífsfylling þegar í þessu jarðlífi, heldur vekja
honum aukna bjartsýni — en leggja honum um leið á herð-