Morgunn - 01.06.1961, Side 60
54
M 0 R G U N N
þið nú með ykkar fjarhrifaskýringu? Þegar við fórum á
miðilsfundinn hafði Leila vinkona mín enn enga hugmynd
um, að móðir hennar hafði verið tvígift. Það er ekki hægt
að sækja í huga manns vitneskju, sem er þar ekki fyrir
hendi, — er þar ekki til.“
Aðra sögu segir sami höfundur, sem henni þykir gera
að engu fjarhrifatilgátuna.
Hún var stödd á tilraunafundi með miðli, þar sem dáin
stúlka tjáðist gera vart við sig. Látna stúlkan kvaðst hafa
andazt átta árum fyrr, 15 ára gömul af höfuðraun, í kunn-
um telpnaskóla. Enginn fundarmanna kannaðist við þenn-
an óvænta gest. Frásögn M. L. er nú þessi: „Látna stúlk-
an, sem tjáði sig tala við okkur, sagði okkur nafn sitt,
nafnið á skólanum og nafnið á forstöðukonunni. Þar sem
áttu að vera meira en átta ár frá því er stúlkan andaðist,
datt mér í hug, að enn kynni sama forstöðukonan að vera
fyrir skólanum. Með varúð skrifaði ég henni og reyndi
varlega að komast eftir hjá henni, hvort rétt væri það,
sem okkur var sagt í miðilssambandinu. Eins og mig hafði
raunar undir niðri grunað, fékk ég kuldalegt svar frá for-
stöðukonunni. Hún skrifaði, að þar sem ég væri ekki ná-
inn ættingi ungu stúlkunnar, gæti hún engar upplýsingar
gefið mér um það, með hverjum hætti hún hefði dáið. En
svo heppin var ég, að ná sambandi, nokkru síðar, við vin-
konu mína eina, sem átt hafði heima á þessum slóðum. Hún
hafði þá verið vinkona fjölskyldu ungu stúlkunnar og hún
staðfesti fyrir mér, að allt væri rétt, er fram hafði komið
í miðilssambandinu.
Ekki var hér hægt fyrir miðilinn að ná nokkurri vit-
neskju um þessa hluti úr huga okkar fundargestanna.
Okkur var öllum ókunnugt með öllu um látnu telpuna,
skólann hennar og forstöðukonuna.“