Morgunn


Morgunn - 01.12.1975, Side 21

Morgunn - 01.12.1975, Side 21
ÆVAR R. KVARAN: SVEPPURINN HELGI i Maður er nefndur R. Gordon Wasson. Hann er bankastjóri og varaforseti mikils bankafyrirtækis í New York, sem heitir J. P. Morgan & Co. Incorporated. Hann er kvæntur og er kona hans læknir, sérfræðingur í barnasjúkdómum. Þau hjón hafa undanfarin 30 ár haft þá óvenjulegu tómstundaiðju, að safna sveppum og rækta þá. Hafa þau i þeim tilgangi ferðazt víða um heim og skrifazt á við menn í þeim heimshlutum, sem þau ekki hafa náð til, með þeim árangri, að þau hafa gert merkilegar uppgötvanir í þessari grein grasafræðinnar, þar sem þau nú teljast brautryðjendur. Hafa þau gefið út rit um þessar rannsóknir, sem þau nefna Mushrooms Russia and History. Er þetta mikið myndskreytt rit í tveim bindimi, sem kemur aðeins út í fimm hrmdruð ein- tökum, enda kostar ritið $ 125. Þau hjónin eyddu fyrir allmörgmn árum sumarleyfum sín- um í afskekktum fjöllum Mexikó. Hafa þau verið á hnotskóg eftir sveppategund nokkurri, óþekktri, sem sögur fóru af að hefði þau áhrif á neytendur þeirra, að þeir sæju sýnir. Hefur Gordon Wasson sagt frá þessum rannsóknum í Mexi- kó í hinu heimskunna bandaríska tímariti Life, og gef ég hon- um nú orðið: Það var aðfaranótt þess 30. júní árið 1955, að ég og vinur minn Allan Richardson vorum viðstaddir eins konar helgi- athöfn, þar sem „guðdómlegir“ sveppir voru við hafðir og þeirra neytt. Þetta gerðist í Indíánaþorpi uppi í fjöllmn i Mexikó, svo fjarri venjulegmn mannabyggðum, að fæstir íbú- anna höfðu enn lært spænsku. Indíánar þessir blönduðu saman

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.