Morgunn - 01.12.1975, Blaðsíða 39
SÆTISTII.RAUNIR
141
Margir eru þeirrar skoðunar, að hin fræga „sætistilraun“
sé mesta afrek Croisets. Eru þess háttar tilraunir verulega
mikilvægar fyrir dularsálfræðilegar rannsóknir nú á tímum.
Ef til vill eru þær frumlegustu visindatilraunir i framskyggni
sem gerðar hafa verið á þessum mannsaldri.
Þessar tilraunir sem Tenhaeff prófessor gerði sérstaklega
úr garði fyrir Croiset hófust fyrir seytján árum á Norður-
löndum. Þær fjalla um að segja fyrir fram í tímann, og hafa
þær síðan verið endurteknar svo hundruðum skiptir af vís-
indamönnum í fimm Evrópulöndum. Þetta hefur vakið stór-
furðu fólks um alla Evrópu og þaggað niður í þeim sem lítið
hafa gert úr yfirskilvitlegum fyrirbrigðum og talið þau tóma
vitleysu. Ástæðan er sú að tilraunir þessar hafa verið gerðar
undir strangasta vísindalegu eftirliti með fyllstu varúðarráð-
stöfunum. Dularsálfræðingar í Bretlandi og Bandaríkjunum
eru loksins farnir að viðurkenna hve stórmerkilegar og mikil-
vægar þær eru.
Valið er af handahófi sætisnúmer úr grunnteikningu yfir
sæti á fundi sem á að halda síðar; segjum þriðja sæti í fimmtu
röð. Engin sæti eru tekin frá. Auk þess er fundurinn stund-
um haldinn í annarri borg og er Croiset iðulega ekki skýrt
frá því. Sætisnúmerið er valið af þeim sem stjórnar tilraun-
inni, einhverjum sem ekkert er við fundinn riðinn eða Croiset.
Ýmist. dregið út eða með frjálsu vali.
f Þýzkalandi er sætið stundum valið af Geiger-Múller-
teljara, sem venjulega er notaður til þess að finna útgeislun.
Hver sem aðferðin er, þá segir Croiset fyrir, hver muni
setjast í umrætt sæti, og er fyrirvarinn allt frá einni klukku-
stund upp í tuttugu og sex daga fyrir fundinn. Hljóðritaðar
spár Croisets eru settar í innsiglað umslag og læstar inni í
peningaskáp og ekki opnað fyrr en á fundinum. Spárnar
em svo rannsakaðar lið fyrir lið, eftir að fundargestir hafa
komið sér fyrir í sætum sínum, með því að spyrja persón-
una sem situr í sætinu vandlega undirbúinna spurninga.
Hafa fullyrðingar Croisets reynzt svo nákvæmlega réttar að
ekki er hægt að útskýra þær sem ágizkanir eða tilviljanir.