Morgunn - 01.12.1975, Blaðsíða 50
SVEINN ÓLAFSSON:
Lífsbót og sáluhjálp
í spennitreyju vestrœnnar streitumenningar:
helgiljóðin miklu
BHAGAVAD GITA,
— Hávamál Indíalands —
FYRRI HLUTI
Bhagavad Gita er indverskur ritningar-texti i átján köflum, sem
hver um sig skýrir viðhorf mannlegs lífs í ]>vi augnamiði að vísa
leiðina til þess að maðurinn geti orðið heill og samstilltur í lifi sinu.
Grundvallarþræðir kenninganna eru ofnir út frá kenningunni um
allsherjar-bræðralag og þróun mannsins til hins guðlega. I ritinu
birtist Shri Krishna, hinn andlegi fræðari, sem lærifaðir er kennir
listina að lifa lifinu að leiðum andans.
Sveinn Ólafsson fulltrúi, höfundur jiessaiar ritgerðar er ötull
sannleiksleitandi og mannræktarmaður eins og skrif hans bera vott
um. Hér kynnir hann lesendum MORGUNS helgiritið fræga, sem
vestrænir menn hafa stundum kallað „Biblíu Hindúa".
Æ.R.K.
Vör'Subrot í sannleiksleitinni.
Til er félagsskapur andlegra leitenda, stofnaður í vestur-
heimi á öldinni sem leið, er nefnist Hin Alþjóðlega Guðspeki-
hreyfing, sem á sér rætur í austrænum trúarbrögðum, en
hefir breiðst síðan bæði til vestrænna og austrænna landa.
Félagsskapur þessi á sér háleit og göfug einkunnarorð sem lýsa
vel hinu víðfeðma og hrífandi markmiði. Þau eru: „Sann-
leikurinn er öllum trúarbrögðum æðri.“ En þetta er um leið
skoðun stofnendanna í þvi hvað útheimtist til heilbrigðs and-
legs lífs fyrir hvern og einn í hildarleik veraldarlífsins. I því