Morgunn - 01.12.1975, Blaðsíða 37
SVEPPURINN HEI.GI
139
að veita honum nokkra aðstoð. Hann varð því að leggja á sig
óhemju-vinnu til þess að læra egypsku og hið forna hýróglýfur,
svo rannsóknir hans gætu haldið áfram.
Hvað viðvikur spurnhigunni um sálfarir, hvort andi manns-
ins eða sál geti horfið um tima úr líkamanum, þá telur Puha-
rich miklu viðtækari rannsóknir nauðsynlegar til þess að ganga
úr skugga um það, og gerir hann grein fyrir því í bók sinni
hvaða skilyrði hann telur nauðsynleg til þess. Verður það ekki
rakið hér. Þó ætla ég að lokum að geta eins atriðis, sem hann
telur að þurfi að taka þar með i reikninginn. En það er hinn
merkilegi þáttur bænarinnar. Um þetta segir Andreija Puha-
rich í bók sinni:
„öllmn finnst okkur við vita hvað bæn sé sem persónuleg
reynsla.
Nú á timum eru margir starfshópar í kiistimii kirkju seni
trúa því, að bænin sé skynsamleg framkvæmd og sé henni vís-
vitandi stefnt að ákveðnu marki geti hún aukið gróður jurta,
læknað sjúkdóma og endurnært hug og sál. Hver svo sem sann-
leikurinn um bænina kann að vera, þá trúi ég því, að hún hafi
þessi áhrif, enda lief ég persónulega verið vitni að ógleyman-
legum áhrifum hemiar.
Hvaða afl, sem kann að vera að baki heitrar bænar, og ekki
get ég skýrt það, þá ætti að taka tillit til þess, þegar ákveðnar
verða aðferðirnar við endanlegar rannsóknir á sálförum, eins
og ég hef lagt til.“
Þetta er bœn mín til þín, Drottinn. — Upprœttu vesaldóm
hjarta míns. — Gef mér styrk til a'8 bera gleSi og sorg meó
léttu géSi. -— Gef rnér styrk til dS láta kœrleika minn sjást
af verkunum. — Gef mér styrk til oð afneita aldrei hinum
fátœku né beygja nokkru sinni kné fyrir ojbeldinu. — Gef
mér styrk til dS hefja sál mína hátt yfir smámuni hversdags-
leikans. — Og gef mér kraft til aS beygja styrk minn af ástúS
undir vilja þinn. — Tagore.