Morgunn - 01.12.1975, Blaðsíða 24
126
MORGUNN
Við vorum um tuttugu saman komin í kjallaranum i húsi
Filemóns rétt eftir klukkan átta um kvöldið. Við Allan vorum
einu ókunnu mennirnir, þeir einu af hópnum, sem ekki gátu
talað Mixetecotunguna. Gestgjafar okkar, þau Filemón og kona
hans, voru þau einu sem kunnu spænsku. Okkur var fagnað
með þeim hætti, að ég hef aldrei kynnzt öðru eins meðal Indí-
ána fyrr né síðar. Háttprýði þessa einfalda, ómenntaða fólks
var alveg einstök. 1 stað þess að taka okkur þurrlega sem und-
arlegum hvítum mönnum, var okkur tekið tveim höndum sem
gömlum vinum; það var engu líkara en við tilheyrðum þjóð-
flokki þeirra.
Karlmennimir voru i sparifötum, en konurnar klæddust
huipiles, þjóðbúningum; karlar í skjannalivítum buxum, sem
haldið var uppi með snúrum, og mislitum vestum yfir tandur-
hreinum skyrtum. Þau gáfu okkur súkkulaði að drekka, og
minntist ég þess þá um leið, að ég hafði lesið um það í ritum
foms spænsks höfundar, að súkkulaði værí drukkið á undan
sveppaathöfninni.
Eftirvænting okkar var mikil. Loksins áttum við nú að kynn-
ast af eigin raun þessum merkilega helgisið, sem lifað hafði
gegn um aldirnar. Þarna lágu sveppirnir i öskju sinni og horfði
fólk á þá með virðingu, en þó án alls hátíðleika. Sveppimir eru
heilagir og aldrei hafðir í ruddalegum gamanmálum, eins og
hvítir menn tala um áfengi.
Um klukkan 22.30 hreinsaði Eva Mendez mestu moldina af
sveppunum, en rétti þá svo með bæn gegn um reyk af reykelsi,
sem brann á gólfinu. Meðan þessu fór fram, sat hún á mottu
fyrir framan einfalt og óbrotið altari, sem var skreytt Krists-
líkneskjum: barnið Jesús og skímin i Jórdan. Síðan útbýtti hún
sveppunum meðal fullorðna fólksins. Þrettán pör tók hún frá
handa sjálfri sér, og jafnmörg handa dóttur sinni. (En svepp-
irnir eru ævinlega taldir í pörum). Ég var sem á nálum af
eftirvæntingu. Hún sneri sér nú að mér og rétti mér sex pör í
bolla. Ég var stórhrifinn. Lokamarki margra ára starfs var náð.
Hún fékk Allan líka sex pör. En hann var á báðum áttum, þvi
kona hans hafði einungis sætzt á að hann færi í þessa för gegn