Morgunn - 01.12.1975, Blaðsíða 32
134
MORGUNN
mikla helgi á, en hingað til var ókunnugt um að slikt þekktist
meðal Egypta.
Puharich læknir sparar sér sannarlega ekki fyrirhöfn til þess
að komast að sannleikanum í þessu máli, því nú snýr hann sér
að Egyptalandsfræðum til þess að vera sjálfstæðari í rannsókn-
um sínum, og næstu þrjú ár rekur hann sérhvert spor, sem
hann finnur, í þessa átt. 1 tvö ár hefur hann Harry Stone til
rannsóknar, ræður hann til rannsóknarstofu sinnar í Maine.
„Skilaboðin“ frá Ra Ho Tep halda áfram að koma gegn um
Harry í tvö ár, en síðan 1956 hefur hann verið laus við allan
trans og var þvi raunar alls hugar feginn, því sjálfur hafði
hann engan áhuga á þessu, tók þetta fremur nærri sér. Hans
eina áhugamál hefur alltaf verið að fá að halda áfram að
skapa höggmyndir i friði.
Þessu næst kynnist læknirinn R. Gordon Wasson, sem er
sveppa-sérfræðingur, er hefur skrifað feikna mikið verk um
þetta efni. Hjá honum fær hann staðfestingu á því, að viss trú-
arflokkur manna í Mexico noti þennan helga svepp við ákveð-
in hátíðleg tækifæri. Hafði Wasson verið viðstaddur slíka at-
höfn, neytt af sveppum þessum og lýst ótrúlegum áhrifum
þeirra í grein í hinu fræga tímariti Life eins og rakið var i
fyrri hluta þessarar greinar. Koma þeir Puharich og Was-
son sér nú saman um það, að sá síðarnefndi fari til Mexico,
reyni að fá samband við curandera, en svo nefnist völva sú,
sem stjórnar sveppa-athöfninni, og reyni þeir að koma á hug-
lægu fjarlirifasambandi milli curandera og rannsóknarstofn-
unar Puharichs í Maine. Framkvæmdi læknirinn ásamt starfs-
mönnum ýmsar athafnir á ákveðnu tímabili, sem curandera
átti síðan að reyna að sjá og lýsa fyrir Wasson. En tilraun þessi
fór út um þúfur vegna ófyrirsjáanlegra atvika. Wasson komst
í samband við merkan curandero í Mexiko, en liann varð svo
hrifinn af þekkingu Wassons og virðingu fyrir helgiathöfn
sveppanna, að hann vígði Wasson til hinnar lokuðu reglu
þeirra sveppamanna, og hlaut það að gerast á kostnað fyrr-
nefndrar tilraunar, því það reyndist afar flókin athöfn.
En víkjum nú frásögninni til rannsóknarstofnunarinnar í