Morgunn - 01.12.1975, Blaðsíða 29
SVEPPURINN HEI.GI
131
dómsgáfu, hlutskyggni og fleiri fyrirbæri, sem ýmsir merkir
vísindamenn eru nú loksins farnir að gefa fullan gaum og
rannsaka á vísindalegan hátt. Þó erum við ekki lengra komin
i þessum efnum en það, að mikill meirihluti þessara lærðu
manna þorir hvergi nærri slíkum rannsóknum að koma af ótta
við að missa við það álit starfsbræðra sinna og vera kenndir
við kukl.
En Andrija Puharich er ekki einn i þeirra hópi. Hann er
þvert á móti svo áhugasamur um rannsóknir þessara fyrir-
brigða, að hann hefur komið á stofn sérstakri rannsóknastöð,
sem hann rekur og stjórnar sjálfur í Maine-fylki í Bandaríkj-
unum þar sem hann á heima. Hann hefur skrifað bók um rann-
sóknir sínar, sem vakið hefur mikla athygli og hann nefnir
The Sacred Mushroom eða Sveppurinn helgi. 1 þessari bók
sinni skýrir hann frá því hvernig hann komst í samband við
ungan liollenzkan myndhöggvara, Harry Stone að nafni, sem
varð fyrir furðulegum skynjunum í transi eða miðilsdái. Það
var vinkona höfundar, Alice Bouverie, sem fyrst vakti atliygli
hans á þessum unga manni; en hún var auðug og mikils metin
kona í New York, listelsk mjög, gjöful, gestrisin og mikill vin-
ur listamanna.
Kvöld nokkurt var Harry Stone í kvöldverðarboði hjá þess-
ari konu og var liún að sýna honum málverkasafn sitt, en hún
átti verk eftir ýmsa fræga nútímamálara. Segir hún frá því,
að Stona hafi virzt þykja lítið til þeirra koma, enda var hugur
hans allur í höggmyndalistinni. Datt lienni þá í hug að sýna
honum ýmsa egvpzka dýrgripi, sem hún átti. Meðal þeirra
var hálsmen eitt, sem Sir Wallis Budge Egyptalandsfræðingur
við British Museum hafði sagt tengdamóður frú Bouverie, að
væri áletrað nafni Tii, frægrar drottningar Forn-Egypta, og
hefði það að öllum líkindum verið persónuleg eign hennar.1)
Frú Buoverie lýsir þessu í simtali frá New York fyrir vini sin-
um dr. Puharich, sem þá var herlæknir staðsettur í Maryland-
D Tii diottning var móðir hins fræga faraós Amenhóteps IV. eða Akna-
tons, sem greinin Sonur sólar fjallar um. Hann rikti frá 1367 til 1350 f. Kr.