Morgunn


Morgunn - 01.12.1975, Blaðsíða 49

Morgunn - 01.12.1975, Blaðsíða 49
SÆTISTII .RAUNIR 151 þáttur. Þrem vikum áður langaði hann til þess að kaupa sér hæggengisplötu. Satt að segja hafði hann fyrrum stjómað plötudeild í verzlun.“ Croiset gerir nú einnig tilraunir með kassa sem tæki. Sá ég hann gera slíka tilraun með góðum árangri þann 30. maí 1963 í Haag. Kassinn er 48 sinnum 33 þumlungar að stærð og er honum skipt í tuttugu og fjögur hólf. Tuttugu og fjórar persónur úr hópi fundargesta (sem Croiset þekkir ekki) leggja síðan persónulegan tengihlut hver í sitt hólf. Hlutirnir snerta ekki hver annan. Klæði er lagt yfir kassann og síðan er honum snúið mörgum sinnum. Meðan þetta fer fram er Croiset fjarstaddur. Því næst kemur hann aftur inn í herbergið og er hljóðritað það sem hann sér í sambandi við einn þeirra tuttugu og fjögurra muna sem liggja í kassanum. Þegar lýsing hans hefur verið hljóðrituð er honum leyft að taka úr viðkomandi hólfi hlutinn sem tilheyrir persónu þeirri sem hann hefur rætt um. Og alveg eins og i sætistilraunun- um, eru fullyrðingar hans grandskoðaðar lið fyrir lið af þeim einstaklingi sem á hlutinn sem vekur tengslin. I sumum þess- ara tilrauna gætir framskyggni, en í öðrum ekki. Mesta gleði hefur Gerard Croiset af því að finna týnd börn. En að því frátöldu nýtur hann sætistilraunanna eimia bezt. Enda hefur engum skyggnum manni í Hollandi tekizt að leika það eftir honum með svo frábærum árangri. Enda þótt Tenhaeff prófessor hafi komið sætistilraununum í kerfi sérstaklega fyrir Croiset, þá telur hann sig þó ekki upphafsmann þessarar aðferðar. Franskur læknir, dr. Eugene Osty, sem var einn af brautryðjendunum i dularsálfræðileg- um tilraunum, gerði slíkar sætistilraunir árið 1926 í Institut Métapsychique í París með Pascal Forthuny, sem var allt í senn blaðamaður, skáld og málari. Þegar Forthuny komst að því fyrir tilviljun að hann bjó yfir dulrænum hæfileikum gekkst hann inn á samstarf með dr. Osty. Að visu var árang- ur af tilraunum Forthunys ekki eins glæsilegur og hjá Croiset en engu að siður var hann þó mikilvægur, því segja má að hann hafi rutt brautina fyrir hinn frábæra dulskyggna Hollending.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.